13/10/2015
Kvennaferð HRESS og Írlandsferðir - Ireland Iceland Travel er óðum að fyllast af skemmtilegum þátttakendum. Við ætlum ekki eingöngu að versla jólagjafir, við ætlum líka að borða góðan mat, drekka unaðslegt írskt kaffi, sötra kampavín og narta í makkarónur með Baileys fyllingu milli þess sem við förum uppáklæddar í High Tea. Við ætlum að að hita hjartaræturnar og skerpa á kjálkalínunni með því að hlægja saman meðan við skoðum lítil þorp og bæi í nágrenni borgarinnar. Við munum lofa James Joyce, Oscar Wilde og daðra við Bono sem býr stutt frá hótelinu okkar. Við göngum garðana þar sem Bob Geldof lék sér sem barn og unglingur og svo getum við skotist í sjósund eða spa. Hvað sem við gerum, þá lofa fararstjórarnir okkar þær Kristín Einars og Linda Hilmars ferð sem nærir bæði líkama og sál. Ef frekari upplýsinga er óskað hafið endilega samband við Kristínu, [email protected]
Flugsæti eru óðum að seljast - svo hik er sama og tap!
Heilsuræktin Hress í Hafnarfirði og Ireland Iceland Travel í Dublin taka nú höndum saman og bjóða upp á skemmtilega kvennaferð til Dublin 4-7. desember. Fararstjórar í þessari ferð eru hinar eldhressu Linda Hilmars, eigandi Hress og Kristín Einars, eigandi Ireland Iceland Travel, sem er búsett í…