Félagsheimilið Freyvangur

Félagsheimilið Freyvangur Félagsheimilið Freyvangi í Eyjafjarðarsveit er leigt út fyrir mannfagnaði, fundi og veislur fr

Félagsheimilið Freyvangur var byggt árið 1957 sem félagsheimili Öngulsstaðahrepps. Eigendur hússins eru sveitarfélagið, Búnaðarfélag Öngulsstaðahrepps, Samherjar og Kvenfélagið Aldan-Voröld. Í Freyvangi fór lengi fram félagsstarfsemi af ýmsum toga, bæði fyrir aðila innan sveitarfélagsins sem og aðra. Upp úr aldamótunum 2000 réðst sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar í stefnumörkunarvinnu um framtíðarh

lutverk félagsheimilanna í sveitarfélaginu. Freyvangi var þá markað hlutverk leikhúss enda hafði Freyvangsleikhúsið þá lengi haft aðsetur fyrir sína starfsemi í húsinu og verið einn stærsti notandi þess. Freyvangur þjónar jafnframt áfram hlutverki félagsheimilis og er húsið leigt út fyrir veislur, tónleika, ættarmót og aðra þá viðburði sem húsið getur þjónað.

25/01/2019

Helgin er alveg að bresta á og Lína og félagar farin að hita upp fyrir gamanið!

Við eigum en þá einhverja lausa miða um helgina en þá er hægt að panta hér: https://tix.is/is/event/7108/lina-langsokkur/

og í síma 857-5598, síminn er opinn alla virka daga frá 14-18 og um helgar frá 11-13.

Sendum sjómönnum og fjölskyldum þeirra hamingjuóskir í tilefni dagsins.
03/06/2018

Sendum sjómönnum og fjölskyldum þeirra hamingjuóskir í tilefni dagsins.

17/02/2018
Frábær skemmtun framundan í húsinu!☺️
18/01/2018

Frábær skemmtun framundan í húsinu!☺️

Freyvangsleikhúsið setur nú upp leikritið Þrek og tár, eitt af ástsælustu verkum Ólafs Hauks Símonarsonar. Leikstjóri er Ólafur Jens Sigurðsson og tónlistarstjóri Ingólfur Jóhannsson. Saga kaupmann…

Kærar jólakveðjur, sjáumst glöð á nýju ári!
23/12/2017

Kærar jólakveðjur, sjáumst glöð á nýju ári!

Freyvangur 60 áraFélagsheimilið Freyvangur var vígt að kvöldi sumardagsins fyrsta, 25.apríl árið 1957 og er því 60 ára u...
13/05/2017

Freyvangur 60 ára

Félagsheimilið Freyvangur var vígt að kvöldi sumardagsins fyrsta, 25.apríl árið 1957 og er því 60 ára um þessar mundir.
Á forsíðu Dags þann 27.apríl er sagt frá vígslunni í máli og myndum og má m.a. lesa eftirfarandi:
„Íbúar Öngulsstaðahrepps hafa nú náð glæsilegum áfanga í félagsmálum. Þeir hafa tekið í notkun mjög vandað og rúmgott félagsheimili og fór vígsla og afhending fram á sumardaginn fyrsta, með mikilli og hátíðlegri viðhöfn. Þetta félagsheimili, sem hlaut hið fagra nafn, Freyvangur, er rúmmikið, vistlegt og mjög vandað að innviðum öllum og búnaði, er fullbúið til notkunar, en eftir er að múrhúða að utan. Það stendur í landi Ytra-Laugalands, örskammt austan þjóðvegarins. Er það miðsvæðis í hreppnum og volgar uppsprettur nærri. "
Húsið þótti eitt hið glæsilegasta félagsheimili á Norðurlandi öllu og hefur verið mikið stórvirki í ekki stærra sveitarfélagi og þess má geta að þegar húsið var vígt var kostnaður kominn í eina og hálfa milljón króna. Það var Öngulstaðahreppur sem greiddi 52% þess kostnaðar sem ekki kom úr félagsheimilasjóði en 8 önnur félög sameinuðust um 48% kostnaðar, kvenfélagið, ungmennafélögin, slysavarnafélagið og framfarafélag hreppsins. Samkeppni var haldin um nafn á hið nýja hús og var það Sigurpáll Helgason frá Þórustöðum sem sigraði með nafninu Freyvangur.
Það er víst að fjölmargir, bæði innan sveitar og utan eiga góðar minningar úr Freyvangi. Samkomur af öllum toga hafa verið haldnar í þessu góða húsi og kynslóðirnar komið hér saman og styrkt vina og ættarbönd. Dansleikir áttu hér fastan sess í áratugi og var þá gjarna boðið upp á sætaferðir frá Akureyri.
Upp úr aldamótunum 2000 réðst sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar í stefnumörkunarvinnu um framtíðarhlutverk félagsheimilanna í sveitarfélaginu. Freyvangi var þá markað hlutverk leikhúss enda hafði Freyvangsleikhúsið þá lengi haft aðsetur fyrir sína starfsemi í húsinu og verið einn stærsti notandi þess. Þess utan þjónar Freyvangur jafnframt áfram hlutverki félagsheimilis og er húsið leigt út fyrir veislur og aðra þá viðburði sem húsið getur þjónað.
Ekki verður haldið sérstaklega upp á þessi tímamót núna en að hausti mun Freyvangsleikhúsið bjóða upp á dagskrá þar sem fagnað verður 60 ára afmæli leiklistar í Freyvangi og verður þá blásið til veislu, söngs og gleði. Þangað til er upplagt að koma í leikhús og njóta skemmtilegrar kvöldstundar með persónum á Gjaldeyri og öðru góðu fólki.

Í Freyvangi er sannarlega farið að vora og leiklistargyðjan tekur sér sumarfrí. Húsið er því til útleigu fyrir mannfagna...
13/05/2017

Í Freyvangi er sannarlega farið að vora og leiklistargyðjan tekur sér sumarfrí. Húsið er því til útleigu fyrir mannfagnaði í sumar eins og áður, veislur, brúðkaup, afmæli osfrv. Ekki er lengur hægt að bjóða upp á tjaldstæði hér þar sem aðstæður til þess eru ekki nægilega góðar en benda má á frábært tjaldstæði á Hrafnagili með fullri þjónustu, einungis örfáa kílómetra héðan. Bendum einnig á að gjaldskráin er óbreytt frá fyrra ári!

Gjaldskrá Útleigu 2016

Hér óma hlátrasköllin frá áhorfendum þessa dagana enda sýningin mikil snilld!
12/03/2017

Hér óma hlátrasköllin frá áhorfendum þessa dagana enda sýningin mikil snilld!

04/02/2017

Eftir rólegt haust þar sem hinir ýmsu iðnaðarmenn sinntu viðhaldsmálum hér í húsi, er nú að lifna yfir öllu á neðri hæðinni og leiklistargyðjan hefur enn á ný tekið sér bólfestu í gamla húsinu. Nú brakar í gólfborðum, hamarshögg heyrast af sviðinu og replikkurnar óma....löngu eftir að leikararnir eru farnir heim. Spennandi!!

Address

Freyvangi
Akureyri
601

Telephone

+3548482360

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Félagsheimilið Freyvangur posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Félagsheimilið Freyvangur:

Share

Category