Visit Hrísey

Visit Hrísey Official web. www.visithrisey.is Þessi síða er ætluð þeim sem vilja fá gistingu í Hrísey. Í boði er gisting fyrir 16 mans. Um er að ræða tvö hús.

Jónatanshús og Mínukot.

Þessi Lundi sást í Hrísey..einnig hefur sést hópur af lunda austur af Stekkjarnefi😁
03/07/2023

Þessi Lundi sást í Hrísey..einnig hefur sést hópur af lunda austur af Stekkjarnefi😁

Ótrúlegt en samt satt..Eins og 2 sólir á himni hér í Hrísey. Mér skilst að þessi aukasól, sem á fræðimáli heitir parheli...
13/07/2021

Ótrúlegt en samt satt..
Eins og 2 sólir á himni hér í Hrísey. Mér skilst að þessi aukasól, sem á fræðimáli heitir parhelion, myndast við ljósbrot í sexstrendum ískristöllum.

Vorum að gera endurbætur á Mínukoti fyrir sumarið :)
09/04/2021

Vorum að gera endurbætur á Mínukoti fyrir sumarið :)

Hann var heldur betur hress með stærsta fisk dagsins..með veiðigleraugu og stígvél í felulitunum😁😁
16/07/2020

Hann var heldur betur hress með stærsta fisk dagsins..með veiðigleraugu og stígvél í felulitunum😁😁

09/06/2020

Sólin ætlar að vera mikið norðanlands í sumar.. enn eru nokkur pláss laus😁🌄😎

21/05/2019

Ánægjulegt að Hrísey og fleiri staðir á norðurlandi séu í 3ja sæti yfir top 10 staði til að heimsækja árið 2019

Frá fréttastofu RUV
Norðurstrandarleið á topp 10 hjá Lonely Planet

21.05.2019 - 04:48


Árskógssandur og Hrísey eru á meðal áfangastaða á hinni nýju Norðurstrandarleið, sem kynnt er sem sérstakur ferðamannasegull.

Breski ferðavísirinn Lonely Planet hefur birt árlegan lista sinn yfir þá tíu staði í Evrópu, sem ferðaglöðum sérfræðingum ritsins þykir bestir eða áhugaverðastir hverju sinni. Í ár trónir náttúruparadísin Tatra-hásléttan í Slóvakíu á toppnum, á undan heimsborginni Madríd, höfuðborg Spánar. Í þriðja sæti er svo það sem á ensku heitir Arctic Coast Way, en hefur fengið heitið Norðurstrandarleið á íslensku og til stendur að opna formlega í næsta mánuði.

Sú leið er um 900 kílómetra löng og liggur einkum meðfram Norðurströnd Íslands en teygir sig líka eilítið inn í land og út til fjögurra eyja norður af landinu, þar á meðal Grímseyjar og Hríseyjar. Alls er 21 þéttbýliskjarni á Norðurstrandarleið, sem verður opnuð formlega degi hafsins í júní næstkomandi ef áætlanir ganga eftir, samkvæmt heimasíðu Markaðsstofu Norðurlands.
Í fjórða sæti á lista Lonely Planet yfir bestu áfangastaði ferðalangsins á þessu ári er svo Hersegóvína, skrefinu á undan hinni sögufrægu hafnarborg Bari á hælnum á Ítalíu. Hjaltland vermir sjötta sætið, franska stórborgin Lyon það sjöunda en furstadæmið í fjallasalnum, Liechtenstein, er númer átta á listanum. Svissneska vínræktarhéraðið Vevey er í níunda sæti, en þar verður í ár haldin þriggja vikna vínhátíð, sem haldin er á tuttugu ára fresti. Tíunda sætið á þessum topp-tíu lista Lonely Planet kemur svo í hlut hins undurfagra Istríuskaga í Króatíu.
Lista Lonely Planet yfir tíu bestu eða áhugaverðustu áfangastaðina í Evrópu 2019 má skoða hér og Norðurstrandarleiðina má kynna sér á þessari vefsíðu.


ÆVAR ÖRN JÓSEPSSON

https://www.ruv.is/frett/talbeitur-fra-kina
12/05/2019

https://www.ruv.is/frett/talbeitur-fra-kina

Lundabyggð er að verða til í Hrísey. Lundarnir þar eru þó heldur óvenjulegir því að þeir koma alla leið frá Kína, eru tvö hundruð talsins og úr plasti.

Nokkrir félagar í lundavinafélaginu stungu niður nokkrum tugum lunda tálfuglum í þeirri von að hann finni sér dvalarstað...
08/05/2019

Nokkrir félagar í lundavinafélaginu stungu niður nokkrum tugum lunda tálfuglum í þeirri von að hann finni sér dvalarstað í Hrísey. Verkefnið er styrkt af Brothættri byggð

Address

Norðurvegi 17
Akureyri
630

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Visit Hrísey posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Visit Hrísey:

Share