ALDIN Biodome

ALDIN Biodome A year round tropical paradise in the arctic

Græn veröld á norðurslóðum, allan ársins hring

ALDIN connects people to nature through healthy food and nature experience under three glass and steal biodomes powered by geothermal energy. ALDIN will grow hundreds of food plants and offer diverse experience based on this i.e. local food hub, farm to table restaurant, entertainment, healthy activities and events. ALDIN is a nature positive business case on trend with robust economics and attractive returns.

Í dag var haldin uppskeruhátíð í litla ALDIN garðinum okkar.Í bland við sólskin og gott veður var boðið upp á smakk á gó...
27/08/2026

Í dag var haldin uppskeruhátíð í litla ALDIN garðinum okkar.
Í bland við sólskin og gott veður var boðið upp á smakk á góðgæti úr garðinum, örerindi og tónlistarflutning.

Hjartans þakkir fyrir komuna! Og takk öll sem lögðuð ykkar að mörkum!

Hjördís Sigurðardóttir ávarpaði gesti og er hér erindi hennar.

,Ágætu gestir, velkomin!

Hugmyndin um vorið, vorið og líka sumarið halda okkur á lífi hér á landi, sameinar okkur og hughreystir 🌞🌳

Veðurguðirnir blessuðu okkur í dag en við þurftum að fresta þessari hátið einu sinni vegna óvðursspár. Erfitt er að skipuleggja samkomur utandyra hérlendis, það vitum við öll!

Hversu yndislegt er að vera hér umvafinn trjágróðri og fuglasöng, finna skjól í trjánum og finna beð með ýmiskonar matjurtum. Og eiga samverustund.

ALDIN Biodome – þróunarverkefni sem ég hef unnið að í 11 ár núna - á að byggja hér á þessari lóð. Skipulag er tilbúið fyrir fagurlagaðar gróðurhvelfingar hér, fylltar af matjurtum og trjám. ALDIN mun bjóða fólki að upplifa vor allan ársins hring. Þar verður boðið upp á margskonar upplifun fyrir sál og líkama.

Þegar ég var í meistaranámi í Hollandi sótti ég áfanga sem mér fannst afar áhugaverður, "human geography" eða mannvistarlandafræði. En í henni er fjallað um samband manns og umhverfis, og hvernig gagnvirk áhrif eru þar á milli. Athyglisverður fannst mér munurinn á þeirri skilgreiningu sem felst í "rými eða svæði" annars vegar og "stað" hins vegar. Við tölum ekki um svæði sem stað fyrr en við höfum komið þangað og upplifað eitthvað þar. Nú getið þið sagt að þið hafið komið á staðinn þar sem ALDIN á að byggjast, og hugrenningatengslin verða góð full af góðum minningum.

Þessi litli tilraungarður og þessi viðburður er örlítið sýnishorn af því sem við getum gert hér. Við höfum starfrækt hér tilraungarð í 6 ár núna – eitt ár hvíldum við garðinn en það var í fyrra og því fór mikil vinna í að ná niðurlögum á illgresi hér í vor.

Fyrst reyndum við að lengja ræktunartíma í báða enda og hraða vexti matjurta og trjá með því að hita upp jarðveginn með bakvatni frá hitaveitukerfi nærliggjandi hverfis sem annars fer í fráveitu. Við fengum frábærar niðurstöður úr tilrauninni – allt að fjórum sinnum meira magn og margfalt hraðari vöxtur ýmissa tegunda. Þegar Veitur ákváðu að rukka himinháa reikninga fyrir þetta vatn sem ennþá er látið renna í fráveitu svo ég best veit, ákváðum við að hætta þeirri tilraun og framkvæma tilraun sem hefur að markmiði sjálfbærar ræktunaraðferðir og endurnýtingu með áherslu á að mynda samfélag um garðinn. Margt heppnaðist vel – einkum að fá fyrirtæki, sérfræðinga og félagastarfsemi til að leggja okkur lið, og fjölskylda mín átti hér margar góðar stundir. Það var alltaf ætlunin að enda árið með samkomu sem þessari og leyfa styrktaraðilum að skína og segja frá sér og tengingu við okkur. Hjartans þakkir til ykkar allra sem komu að þessu starfi.

Nútíma samfélag er frábært á margan hátt með alla sína tækni og möguleika. En hraðinn er mikill og við getum bara ýtt á takka og allt gerist fyrir einhverja töfra. Þessi lífstíll hefur þó það í för með sér að við erum að tapa tengslunum við náttúruna finnum fyrir meiri einmannleika og tilgangsleysi. Það að rækta eitthvað á lífrænan hátt gefur manni góða tilfinningu fyrir verðmæti og tíma.

Fyrir mig persónulega hefur garðurinn í sumar verið geðræktargarður, hingað hef ég komið og unnið og notið núvitundar. Hvílt mig á skjánum og rýni í tölur og stafi.

ALDIN hugmyndafræðin eflir sjálfbærni, nærir líkama og sál og fræðir gegnum skilningarvitin. Allt þetta er það sem framtíðarsamfélög um heim allan þurfa. Við ætlum að byrja hér og stækka svo og stækka.

Unaðsreitur ALDINKjarninn í starfsemi ALDIN er ræktun á matjurtum og trjám og upplifun tengt því.  Því ákváðum við að ve...
07/08/2026

Unaðsreitur ALDIN

Kjarninn í starfsemi ALDIN er ræktun á matjurtum og trjám og upplifun tengt því. Því ákváðum við að vera með lítið garðverkefni á lóðinni okkar! 🌿🌻

Í gegnum vinnuna í garðinum erum við að læra (líka að gera mistök 🙃) og um leið að minna okkur á nauðsyn þess að tengjast náttúrunni og meta það sem hún veitir. Við ræktum matjurtir og á sama tíma okkar eigin líkamlegu- og andlegu heilsu. Þetta verkefni snýst um að rækta með lífrænum aðferðum og byggja upp samfélag þar sem sumir leggja til jarðveg (Gæðamold ehf), aðrir plöntur (Ræktunarstöðin Miðvogi Akranesi, Sunna Garðyrkjustöð Sólheimum og Samson Bjarnar Harðarson) enn aðrir efnivið í beð (Tengi og Húsasmiðjan), og trjákurl í stíga (Skógræktarfélag Reykjavíkur) Ekki má gleyma flutningi á efni (Barr Verktakar) og síðast en ekki hefur fólk lagt fram vinnu og tíma í garðvinnuna(oft á tíðum fjölskylda og vinir Hjördís Sigurðardóttir (þgf).

Erum þakklát fyrir þátttökuna og hlökkum til að gera eitthvað spennandi með þetta verkefni síðar í sumar og bjóða þátttakendum að njóta.

In English:

ALDIN's Garden

The core of ALDIN's activities is the cultivation of vegetables and trees and the experience associated with it. That's why we decided to have a small garden project on our plot! 🌿🌻

Through working in the garden, we are learning (and making mistakes 🙃) and at the same time reminding ourselves of the need to connect with nature and appreciate what it provides. We grow vegetables and at the same time our own physical and mental health. This project is about growing organically and building a community where some contribute soil (Gæðamold ehf), others plants (Ræktunarstöðin Miðvogur Akranes, Sunna Garðyrkjustöð Sólheimar and Samson Bjarnar Harðarson), still others material for beds (Tengi and Húsasmiðjan), and tree bark for paths (Skógræktarfélag Reykjavíkur). Not to forget the transportation of material (Barr Verktakar) and last but not least the people contributed work and time to the gardening (often family and friends Hjördís Sigurðardóttir (þgf).

We are grateful for the participation and look forward to doing something exciting with this project later this summer and inviting participants to enjoy it.
Send feedback

Fjöldi fólks kom til okkar og spurði um ALDIN á stefnumóti ferðaþjónustunnar á höfuðborgarsvæðinu í ráðhúsi Reykjavíkur ...
08/05/2026

Fjöldi fólks kom til okkar og spurði um ALDIN á stefnumóti ferðaþjónustunnar á höfuðborgarsvæðinu í ráðhúsi Reykjavíkur í vikunni.
Kaffi- og tómatplanta skreyttu básinn og ferskmeti beint frá íslenskum garðyrkjubændum í boði fyrir gesti.
Öll voru gríðarlega spennt fyrir ALDIN og sannarlega gaman að finna jákvæð viðbrögð hjá þessum mikla fjölda fólks.

Hlakka til að hitta fólkið í ferðaþjónustunni og áhugasama aðila, og segja frá ALDIN Biodome.  Heimsins fyrstu gróðurhve...
04/05/2026

Hlakka til að hitta fólkið í ferðaþjónustunni og áhugasama aðila, og segja frá ALDIN Biodome. Heimsins fyrstu gróðurhvelfingum sem knúnar eru með jarðvarma og skapa yndislegt, nærandi og falleg umhverfi fyrir okkur allan ársins hring 🪴

16/04/2026
16/04/2026

Hefurðu skoðað þetta stórkostlega mannvirki í Singapúr, hannað af WilkinsonEyre? Hlustaðu á Paul Baker arkitekt, segja söguna á bak við hönnunina.

WilkinsonEyre eru leiðandi arkitektar ALDIN Biodome, en nálgunin í hönnun er frábrugðin. ALDIN verður um það bil fjórum sinnum minna mannvirki (að gólffleti), sem þjónar annarskonar samfélagi og menningu og önnunarnálgunin sem endurspeglar þetta. Ólíkt visthovlfunum í Singapúr, verður ALDIN fellt vel inn í landslagið, og sýnir þannig virðingu fyrir hinum elskaða Elliðaárdal. Mannvirkið verður að hluta neðanjarð eins og sést í myndbandinu sem deilt var í síðustu færslu.

English version (on LinkedIn) of the post in a comment.

ALDIN Biodome: Framsýn hugmynd og einstök staðsetningSkoðaðu hugmyndafræðina og stórkostlega staðsetningu ALDIN Biodome....
27/03/2026

ALDIN Biodome: Framsýn hugmynd og einstök staðsetning

Skoðaðu hugmyndafræðina og stórkostlega staðsetningu ALDIN Biodome. Uppgötvaðu hvernig nýting jarðvarmans getur skapað magnaðar andstæður sem felast í upplifun af gróskumiklu, nærandi og fjölbreyttu umhverfi, hvenær sem er hér á Norðurslóðum.

Þetta myndband var framleitt af Spor í sandinn ehf., móðurfélagi ALDIN Biodome, með aðstoð útivistarmannsins og ljósmyndarans Sigurðar Bjarna Sveinssonar og WilkinsonEyre arkitekta, og var útbúið til að kynna ALDIN á MIPIM ráðstefnunni árið 2023.

Explore the visionary concept and breathtaking location of the ALDIN Biodome. Discover the striking contrast in the Nordic region - a lush, nourishing, and biodiverse environment powered by sustainable geothermal energy that ALDIN offers. This video, produced by Spor í sandinn ehf., the holding com...

Svona breyttist raskað svæði í grænt ævintýri þegar Eden project í Conwall var byggtReykjavíkurborg Visit Reykjavík
06/03/2026

Svona breyttist raskað svæði í grænt ævintýri þegar Eden project í Conwall var byggt

Reykjavíkurborg Visit Reykjavík

The ‘Eden Effect’ 🌍

Today, as we celebrate St Piran's Day – Cornwall’s national day – we’re proud to release our landmark Impact Report as we approach 25 years of the Eden Project.

From a former clay mine in Cornwall to a global symbol of renewal, Eden has:

✨ welcomed over 25 million visitors
✨ generated more than £6.8 billion total economic impact to Cornwall and the South West Region (£5.7 billion staying in Cornwall)
✨ created an average of 700 jobs sustained across the 25 years
✨ reached more than a million young people through education programmes
✨ brought together a million people through the Eden Sessions

From Cornwall to Costa Rica, Dubai, China, Morecambe Bay and Dundee, the Eden Effect shows how nature-led regeneration can power sustainable growth and help people, place and planet rise together.

We couldn’t have done all this without the incredible support of our visitors, staff and volunteers, and the many visionary people we’ve partnered with over the years – so thank you. Together, we continue to believe that the future remains ours to make.

Come and visit us during our 25th anniversary year to see how we’ve grown, and read the full Impact Report here – https://bit.ly/408eEKa

Address

Grandagarði 16
Reykjavík
REYKJAVÍK

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when ALDIN Biodome posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to ALDIN Biodome:

Shortcuts

Featured

Share