05/12/2024
Við fordæmum harðlega ákvörðun fráfarandi forsætisráðherra Bjarna Benediktssonar að gefa út nýtt hvalveiðileyfi á sínum síðustu dögum í tímabundinni starfsstjórn.
Okkur þykir það svívirðileg valdníðsla fallinnar ríkisstjórnar.
Það er ljóst að þeir þrír flokkar sem nú eru í stjórnarmyndunarviðræðum eru á móti hvalveiðum og því er þetta sérlega ólýðræðislegt og einkennileg vinnubrögð svo ekki sé meira sagt.
Þjóðin var skýr í nýliðnum kosningum og vildi breytingar, meirihluti landsmanna vilja ekki hvalveiðar og það er fordæmalaus vanvirðing við lýðveldið að fráfarandi forsætisráðherra þrýsti leyfi í gegn án umboðs þjóðarinnar.
Katrín Jakobsdóttir fyrrv. forsætisráðherra skipaði starfshóp fyrr á þessu ári sem falið var að fara yfir lagaumhverfi og stjórnsýslu hvalveiða, auk samræmis við alþjóðlegar skuldbindingar og sáttmála. Ákvörðun um stefnu Íslands hvað varðar hvalveiðar átti svo í framhaldi að taka mið af skýrslu starfshópsins. Sú skýrsla er enn væntanleg og því enn einkennilegra að Bjarni Benediktsson hafi einnig farið á svig við þá ákvörðun ríkisstjórnarinnar sem hann sat í.
Staðfest er að hvalveiðar fara gegn lögum um velferð dýra og brýnt er að hvalveiðibann verði samþykkt á Alþingi hið fyrsta.
Við hvetjum nýja ríkisstjórn til að afturkalla þessa leyfisveitingu sem fráfarandi forsætisráðherra hafði ekki umboð til að veita þar sem tímabundinni starfsstjórn er ekki ætlað að taka stórar stefnumótandi ákvarðanir.
Bönnum hvalveiðar!
Skrifið undir þessa áskorun hér: https://island.is/undirskriftalistar/8aad2100-f74f-4bc9-878b-45a98f5bc678
Hvalavinir-Stop whaling in Iceland
Samtök grænkera á Íslandi
Samtök um dýravelferð á Íslandi