Gígur - gestastofa

Gígur - gestastofa Gestastofa og upplýsingagjöf fyrir friðlýst svæði í Þingeyjarsveit. Opið alla daga frá 09:00 til 18:00. Open daily from 09:00 to 18:00. All welcome!

Gestastofan Gígur í Mývatnssveit er opin allan ársins hring. Þar veita landverðir gestum fræðslu og upplýsingar. Vorið 2025 opnaði ný sýning, Undraveröld náttúrunnar, sem fjallar um jarðfræði, líffræði, menningu og sögu Mývatnssveitar sem og hálendisins norðan Vatnajökuls. Verið velkomin!


—-

The visitor centre Gígur in Mývatn is open all year. There, park rangers provide education and informati

on to guests. In the spring of 2025, a new exhibition, Nature’s Wonders, opened. It explores the geology, biology, culture and history of the Mývatn region as well as the highlamds north of Vatnajökull. Sími/Phone: 470-7110 Netfang/Email: [email protected]

01/06/2026

Flugan er komin
The midges have arrived 🦟

20/05/2026

Gestastofan lokar klukkan 17 í dag - annars er opið frá klukkan 9-18 alla daga 🌸
—-
The visitor centre will close at 5 PM today 🌸

15/05/2026

Nú hefur tekið við sumaropnunartími hjá okkur, sem gildir til og með 14. september.
Gestastofan er því opin alla daga frá klukkan 9-18 - verið öll hjartanlega velkomin 🌸

Now we are open every day from 9:00 AM to 6:00 PM - we look forward to welcoming you all 🌸

21/04/2026

Nú er útlit fyrir hlýindi og hláku áfram, en enn er mikið frost í jörðu. Því er jarðvegur og stígar með allra viðkvæmasta móti vegna aurbleytu.

Þeir stígar sem hafa verið uppbyggðir á síðustu árum eru flestir vel færir, þrátt fyrir að yfirborðið sé blautt. Það gildir um Gígahring og Tjarnarhring á Skútustöðum, og Stórahring og Litlahring í Dimmuborgum. Einnig er nýlagði stígurinn við Strípa þurr.

Aðrir stígar í Dimmuborgum eru lokaðir, það gildir líka um leiðina þaðan að Hverfjalli (Hverfelli) og að Birtingatjörn.

Miðað við Veðurspá er líklegt að loka þurfi fleiri stígum, t.d. að Belgjarfjalli og öðrum óuppbyggðum stígum. En þá er enn til nóg af stígum sem hægt er að ganga án þess að valda skaða á náttúrunni (og mögulega ykkur sjálfum).

Endilega lítið við á gestastofunni fyrir nýjustu upplýsingar, því þær breytast frá degi til dags, þar er opið frá 10-17 alla daga.

Hönnun gestastofunnar okkar á Gíg hefur verið birt á Divisare, virtri vefsíðu arkitektúrs. SP(R)INT STUDIO, í samstarfi ...
13/04/2026

Hönnun gestastofunnar okkar á Gíg hefur verið birt á Divisare, virtri vefsíðu arkitektúrs. SP(R)INT STUDIO, í samstarfi við NISSEN RICHARDS STUDIO, vann að sýningarhönnun, innanhússhönnun og grafískri hönnun fyrir gestastofuna.

Lýsing á hönnun gestastofunnar og fallegar myndir prýða vefsíðuna. Við erum einstaklega ánægð með hvernig til tókst og stolt af fallegri, fræðandi og gefandi gestastofu.

Sjá hér:

https://divisare.com/projects/554106-nissen-richards-studio-sp-r-int-studio-studio-capn-gigur-visitor-centre?fbclid=IwY2xjawQyj9VleHRuA2FlbQIxMQBzcnRjBmFwcF9pZBAyMjIwMzkxNzg4MjAwODkyAAEeWCpTVgzE7QyGIcrlPVTMdQJrUHW0Vbt0h9cQLVIiS7WZ_pVMjU0Ua4wDpWg_aem_lA5N7iXnZjR6Bwrmn7sStw

Nissen Richards Studio, together with local Icelandic design partner SP(R)INT STUDIO, has created the permanent exhibition, interior and graphic design for The Gígur Visitor Centre in Iceland, along with the centre’s welcome area, café and shop. The brief

Geimfarar á vegum Geimferðastofnunar Bandaríkjanna (NASA) eru nú á leið heim aftur eftir vel heppnaða ferð á braut um tu...
07/04/2026

Geimfarar á vegum Geimferðastofnunar Bandaríkjanna (NASA) eru nú á leið heim aftur eftir vel heppnaða ferð á braut um tunglið. Geimskotið er hluti af Artemis-áætluninni og er liður í því markmiði að leiða til varanlegrar dvalar á tunglinu. Geimfararnir um borð geimflaugarinnar eru þau Victor Glover, Christina Koch, Jeremy Hansen og Reid Wiseman.

Allt frá því Neil Armstrong og félagar héldu til Íslands árið 1967, til æfinga fyrir fyrstu lendingu manna á tunglinu, hafa rannsóknir og æfingar reglulega verið haldnar hérlendis í tengslum við geimrannsóknir og áætlaðar ferðir út í geim. Hálendið norðan Vatnajökuls hefur reynst þeim sérstaklega heppilegt til rannsókna og þykir líkjast tunglinu að mörgu leiti.

Fyrrnefndir Artemis-II geimfarar sinntu æfingum á sama stað sumarið 2024, sem liður í undirbúningi fyrir ferð þeirra á braut um tunglið. Við Drekagili hittu þau fyrir landverði, en undanfarin ár hafa landverðir fengið að fylgjast með rannsóknum þeirra og æfingum og fengið góða kynningu á því starfi í tjaldbúðum NASA við Drekagil, jafnvel fengið boð í grillveislu og landverðir skorað á NASA í Kubb. Sem þakklætisvott fyrir samstarfið fengu landverðir að auki gjöf frá þeim þetta sumar, mynd af fjórmenningunum með tunglið í bakgrunni.

Á meðfylgjandi mynd má sjá landvörðinn Jóhönnu Kristínu Jóhannesdóttur taka á móti gjöfinni frá geimförunum.

Ljósmynd: Regina Wegmann

13/03/2026

Takk fyrir þetta skemmtilega myndband Mývatnsstofa! Opið hjá okkur alla daga frá klukkan 10:00-17:00 þar til 15. maí þá breytist það í 9:00-18:00. Verið velkomin 💚

Thank you for this lovely video, Visit Mývatn! We are open every day from 10:00–17:00 until May 15, when our hours will change to 9:00–18:00. You are very welcome 💚

Í tilefni Vetrarhátíðar við Mývatn buðum við upp á göngu í gær með Sigga landverði út í Mikley. Gengið var frá Gíg, yfir...
06/03/2026

Í tilefni Vetrarhátíðar við Mývatn buðum við upp á göngu í gær með Sigga landverði út í Mikley.

Gengið var frá Gíg, yfir Stakhólstjörn, út í Mikley og í land við Fellshól og á meðan fræddi hann gesti um vatnsins not og nytjar.

Takk kærlega fyrir komuna 💚

04/03/2026

ATH! Vegurinn í Dimmuborgir er ófær vegna hálku - ekki ráðlagt að fara þangað þar til búið verður að sanda!

ATTENTION! The road to Dimmuborgir is impassable due to icy conditions – it is not recommended to go there until it has been sanded!

⛸️ Í gær tókum við þátt í Vetrarhátíð við Mývatn þar sem við buðum gestum í Skautafjör á Boðatjörn. ❄️Veðrið var dásamle...
02/03/2026

⛸️ Í gær tókum við þátt í Vetrarhátíð við Mývatn þar sem við buðum gestum í Skautafjör á Boðatjörn.

❄️Veðrið var dásamlegt en kalt, svellið með betra móti og félagsskapurinn algjörlega frábær.

☕️Boðið var upp á heimabakaða snúða, heitt súkkulaði, kaffi og sykurpúða og lindubuff til að grilla á báli.

Takk æðislega fyrir komuna öll! 🩵

Address

Skútustaðir

Opening Hours

Monday 09:00 - 18:00
Tuesday 09:00 - 18:00
Wednesday 09:00 - 18:00
Thursday 09:00 - 18:00
Friday 09:00 - 18:00
Saturday 09:00 - 18:00
Sunday 09:00 - 18:00

Telephone

+3544707110

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Gígur - gestastofa posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share