13/02/2026
Kúbuferðir (reknar af 2Go Iceland Travel / Go ehf.) hafa skipulagt ferðir til Kúbu frá árinu 2017. Markmið okkar frá upphafi var að byggja upp raunveruleg tengsl milli landa, sýna íslenskum ferðamönnum hina sönnu Kúbu og styðja beint við heimafólk með ábyrgri ferðaþjónustu. Í gegnum árin fórum við með fjölda hópa frá Íslandi og nutum mikils trausts og jákvæðra viðbragða.
Í nóvember 2024 fórum við síðustu ferðina okkar til Kúbu. Ástæðan var sú að við sáum skýra og hraða hnignun á grunnþjónustu í landinu. Rafmagnsleysi varð tíðara og langvinnara, eldsneytisskortur hafði áhrif á samgöngur og þjónusta, jafnvel á ferðamannasvæðum, varð ófyrirsjáanleg. Að okkar mati var ekki lengur hægt að tryggja það öryggi og gæði sem við teljum lágmarksforsendu fyrir farþega okkar. Því tókum við þá erfiðu ákvörðun að hætta með ferðir til Kúbu tímabundið til að setja öryggi ferðalanga í fyrsta sæti.
Þegar við fréttum að annað íslenskt fyrirtæki hygðist hefja ferðir til Kúbu sendum við þeim á vormánuðum 2025 upplýsingar um stöðuna eins og við þekktum hana af eigin reynslu. Markmið okkar var ekki að hafa áhrif á ákvarðanir þeirra, heldur að miðla þekkingu sem safnast hafði í gegnum árin og styðja við ábyrga skipulagningu ferða við krefjandi aðstæður.
Núverandi staða, þar sem íslenskur hópur gæti lent í erfiðleikum við heimferð, kemur okkur því miður ekki á óvart í ljósi þróunarinnar sem við urðum vitni að. Við viljum þó taka skýrt fram að Kúbuferðir / 2Go Iceland Travel eru ekki með neina hópa í Kúbu um þessar mundir, þar sem við stöðvuðum starfsemi þar í lok árs 2024 einmitt vegna þessarar áhættu.
Við vonum innilega að þeir Íslendingar sem nú eru staddir í Kúbu komist heilir heim. Um leið viljum við hvetja alla aðila sem skipuleggja ferðir til landsins til að kynna sér aðstæður ítarlega og leita ráðgjafar hjá þeim sem hafa víðtæka reynslu af starfsemi þar. Aðstæður á Kúbu geta breyst hratt og krefjast mikillar undirbúnings og þekkingar.
Með þessari yfirlýsingu viljum við leggja áherslu á mikilvægi ábyrgrar ferðaþjónustu þar sem öryggi ferðalanga og raunhæft mat á aðstæðum er alltaf í forgangi.
Virðingarfyllst,
Juan Carlos Suarez Leyva & Guðni Kristinsson
Eigandur / Kúbuferðir / 2Go Iceland Travel / Go ehf.