19/05/2026
Velkomin til Rapale í Toskana, fallegt lítið þorp í miðaldakastala, þar sem tíminn stendur kyrr, þar sem augu og sál fyllast af fegurð.
Rapale er töfrandi staður, staðsettur í 500 metra hæð yfir sjávarmáli nálægt Chianti Senese og með dásamlegu útsýni yfir dali, þorp og kastala. Þar ríkir ró og kyrrð, umkringd grænum hæðum með ólífutrjám, sýprustrjám og vínvið.
Rétt hjá íbúðinni undir bogum fornra múranna er falleg verönd með útsýni yfir Siena og stórkostleg sólsetur og stjörnubjörtum nóttum.
Að dvelja í þessu litla miðaldaþorpi mun heilla þá sem elska náttúruna, kyrrð og ró og forna sögu Ítalíu.
Rapale er miðsvæðis í Toskana og vel staðsett til að heimsækja nálægar listaborgir með söfnum og sögu: Siena, Monteriggioni, Arezzo, Flórens, Pienza, Montepulciano, Cortona, hinn dásamlegi dalur Val d'Orcia og mörg önnur heillandi lítil þorp.
Það er einnig nálægt Úmbríu héraði, Assisi, Perugia og Trasimeno-vatni þar sem hægt er að leigja hjól og hjóla um svæðið.
Toskana er rík af hefðum og fornum viðburðum eins og Palio á Piazza del Campo í Siena, Sarasena á Piazza Grande í Arezzo og sögulegi fótboltinn á Piazza Santa Croce í Flórens.
Rapale er frábær upphafsstaður fyrir hjólaferðir eftir malarvegum til nálægra áfangastaða, gönguferðir eða hestaferðir (það er hestaleiga aðeins 4 km frá Rapale).
Hægt er að fara í vínsmökkun til dæmis í Montepulciano og Montalcino svo eitthvað sé nefnt en af nógu er að taka í þeim efnum á Ítalíu svo ekki sé talað um góðan mat og veitingastaði.
Rapale er aðeins í nokkurra mínútna fjarlægð frá jarðhitasvæðunum í Rapolano Terme, Terme San Giovanni og Terme Antica Querciolaia.
Í Rapale sjálfu eru engir barir eða veitingastaðir, en þeir eru aðeins í 10 mínútna akstursfjarlægð.
Við mælum með að leigja sér bíl meðan á dvölinni stendur.
Hægt er að komast til Rapale með bíl frá A1 Autostrada del Sole, með útgönguleið Valdarno, og þaðan eru 30 mínútur til Raple, eða frá Siena/Perugia þjóðveginum, með útgönguleið Colonna del Grillo, og þaðan eru 10 mínútur.
Matvörubúðir og helstu nauðsynjar eru aðeins í 10 mínútna fjarlægð frá Rapale, í Ambra, 15 mínútur til Castelnuovo Berardenga og 15 mínútur til Rapolano Terme.
Siena er aðeins í 35 mínútna fjarlægð, Arezzo í 45 mínútur, Flórens rúm 1 klukkustund, Perugia rúm 1 klukkustund og Róm í 2,5 klukkustundir.
Íbúðin Contadino er með 2 svefnherbergi og getur því rúmað 4 manns, 2 baðherbergi, rúmgóð stofa og eldhús.
Íbúðin er með ókeypis WiFi.
Sundlaugin er í sameign og deilist með hinum íbúunum, þar er fallegt útsýni og gott að kæla sig þegar heitt er í veðri, þar er líka útisturta sem hægt er að nota.
Bílastæði eru í boði á torginu eða götunni nálægt íbúðinni.
Í Rapale búa nokkrir yndislegir kettir sem öllum 15 íbúum og sumarferðamönnum þykir vænt um og þeir eru á vappi um svæðið.
Í nærliggjandi þorpum og Valdambra-dal eru kaffibarir, krár og veitingastaðir sem bjóða upp á besta hefðbundna og margrómaða ítalska matargerð.
Leigubíla- eða bílaleiga: Siena, Montevarchi, Sinalunga
Hjólaleiga í 20 mínútna fjarlægð frá Rapale hjá Sinalunga Motors and Bike.
Sími: 3926975411
Nánari upplýsingar hér á messenger, 8651625 eða [email protected]
Bestu kveðjur, María og Stefano