Ferðir um Kaupmannahöfn

Ferðir um Kaupmannahöfn Bráðskemmtilegar ferðir um Kaupmannahöfn. Gangandi eða hjólandi í 1,5 til 2,5 klst. Skraddarsniðnar göngur eftir óskum. Hafið samband!

18/09/2023

JÓLIN KOMA 😎 🧑‍🎄

Þó enn sé sól og sumar hér í borg, þá haustar fyrir rest, væntanlega, og svo koma jólin. Það er jú gangur lífsins. Jólin 2023 í Kaupmannahöfn hefjast 6. nóvember kl. 20.59. Og svo verður líf og fjör í í margar vikur, mikið að sjá og upplifa. Enda einstök jólaborg, Kaupmannahöfn.

Við erum boðin og búin til að sýna fólki borgina á bráðskemmtilegan og áhugaverðan hátt. Höfum á liðnum árum gengið með þúsundum Íslendinga og erum hvergi nærri hætt, enda alltaf að læra eitthvað nýtt sem gaman er að segja frá.

Þau sem hafa áhuga mega gjarnan hafa samband fyrr en síðar, því haustið fyllist ávallt hratt. Margs konar göngur eru í boði, hér má lesa meira: www.ferdirumkbh.dk.

Hlökkum til að heyra frá ykkur, Ásta & Hrannar.

Það er ávallt líf & fjör í fallegu Kaupmannahöfn. Á haustin koma margir Íslendingar til borgarinnar, ekki síst þegar fær...
15/10/2022

Það er ávallt líf & fjör í fallegu Kaupmannahöfn. Á haustin koma margir Íslendingar til borgarinnar, ekki síst þegar færist nær jólum. Enginn verður svikinn af því að koma í ferðalag með okkur um borgina, sjá hana frá sínum bestu hliðum, kynnast leyndarmálunum og heyra skemmilegustu sögurnar ... 😎 ... og ef þið hafið áhuga, þá endilega hafið samband, fyrr en síðar, því bráðum verður allt orðið uppselt ... 🇮🇸 🇩🇰

Það eru margir hópar, stórir sem smáir, sem ganga eða hjóla með okkur um fallegu Kaupmannahöfn. Hér er mynd af góðum hóp...
08/06/2022

Það eru margir hópar, stórir sem smáir, sem ganga eða hjóla með okkur um fallegu Kaupmannahöfn. Hér er mynd af góðum hópi frá Íslandi sem var að fara á árshátíð s.l. laugardag. Allir glaðir í sólinni.

Hafið samband ef ykkur langar að upplifa borgina á nýjan hátt og heyra skemmtilegar sögur, við lofum góðri skemmtun, og alveg óháð því hvort þið þekkið borgina eða ekki ... 😎

Það er skemmtilegt og fróðlegt að ganga með okkur um Kaupmannahöfn ... eða hjóla ... enda er borgin falleg og hefur upp ...
04/10/2021

Það er skemmtilegt og fróðlegt að ganga með okkur um Kaupmannahöfn ... eða hjóla ... enda er borgin falleg og hefur upp á endalaust margt að bjóða ... ekki skemmir að nóg er til af sögum af Íslendingum og öðru skrýtnu fólki ... 😀 ... mikið fjör er hér á aðventunni (sem hefst jú eftir korter eða svo) enda vandfundar meiri jólaborgir og stemmningin frábær ... ef ykkur langar að kynnast borginni betur, skoða fallega hluti og heyra skrýtnar sögur ... þá endilega hafa samband ... jafnvel fyrr en síðar ... og við finnum eitthvað skemmtilegt að gera ... vonandi sjáumst við ... 😎 👀

Kæru landar ... nú fer allt að verða eðlilegt á ný og aldeilis kjörið að huga að skemmtilegum og fróðlegum göngu- og/eða...
18/05/2021

Kæru landar ... nú fer allt að verða eðlilegt á ný og aldeilis kjörið að huga að skemmtilegum og fróðlegum göngu- og/eða hjólaferðum um dásamlegu Kaupmannahöfn ... ýmislegt í boði ... sjá nánar á www.ferdirumkbh.dk ... tilvalið fyrir ferðamenn og heimamenn og alla sem hafa gaman að fallegum hlutum og skemmtilegum sögum ... við erum alltaf klár ... fjöldi getur verið á milli 2 og 20 ... hafið endilega samband ... við lofum góðri skemmtun ... 😀

Mynd dagsins (11). LAUKAR ÚR GULLI. Rússneska kirkjan á Breiðgötu er helguð stórfurstanum og verndarenglinum Aleksander ...
14/11/2020

Mynd dagsins (11). LAUKAR ÚR GULLI. Rússneska kirkjan á Breiðgötu er helguð stórfurstanum og verndarenglinum Aleksander Nevskij. Byggð af rússnesku ríkisstjórninni í tilefni þess að Alexander næst-síðast Rússakeisari hafði kvænst dönsku prinsessunni Dagmar Kristjánsdóttur sem kölluð var Maria Feodorovna í Rússlandi. Kirkjan var byggð 1881 í klassískum rússneskum stíll með þrjá gull-lauka á hvolfi á toppnum. Kirkjan er flott og laukarnir gljáfægðir og skínandi. Þeir sjást þó ekki á göngu um borgina nema haft sé fyrir því að horfa hátt upp í loft ... 😎

Mynd dagsins (10). FJÓRIR ÍSLENZKIR GESTIR. Mynd Örlygs Sigurðssonar af Jónasi, Sverri, Árna og Jóhanni. Teiknuð 1978, h...
13/11/2020

Mynd dagsins (10). FJÓRIR ÍSLENZKIR GESTIR. Mynd Örlygs Sigurðssonar af Jónasi, Sverri, Árna og Jóhanni. Teiknuð 1978, hangir enn uppi á Hviids Vinstue. Jónas sat hér stundum að drykkju og héðan er hann sagður hafa komið, þegar hann fótbrotnaði í stiganum, sællar minningar. Hvítur er elsta vínstofan í borginni, frá 1723, á sér sess í hugum Íslendinga eftir heimsóknir í tæp 300 ár. Á kórónulausum tímum eru meiri líkur en minni að hér heyrist íslenska. Á aðventunni fæst hér frægasta og besta gløggið í bænum. Klassa staður, Vínstofa Hvíts, saga í hverjum sopa.

Mynd dagsins (9). GAMLA STRÖND. Neðanjarðarlestarstöðin á Gammel Strand er árs gömul og ansi mögnuð. 100 milljón farþega...
12/11/2020

Mynd dagsins (9). GAMLA STRÖND. Neðanjarðarlestarstöðin á Gammel Strand er árs gömul og ansi mögnuð. 100 milljón farþegar í metró í ár, tvöfalt fleiri eftir örfá ár. Töff hönnun á Metróstöðvunum, segir sögur af nærumhverfinu. Hér er lengsti rúllustigi Danmerkur og hvítar keramik flísar á veggjunum sem nokkrum sinnum á dag eru baðaðar í bláu ljósi. Tilvísun í bláa litinn sem verður til þegar sólarljósið endurspeglast í vantsyfirborðinu í skurðunum við Gömlu strönd. Útpælt og svalt.

Mynd dagsins (8) BYSSUSTRÆTI. Hið skambyssulaga Pistolstræde er eina eftirlifandi öngstrætið í Miðaldabænum. Vel falið i...
11/11/2020

Mynd dagsins (8) BYSSUSTRÆTI. Hið skambyssulaga Pistolstræde er eina eftirlifandi öngstrætið í Miðaldabænum. Vel falið inn á milli stórra stræta og húsa, tengist Strikinu. Öngstrætin voru mörg í gamla daga, þar bjó fátæka og veika fólkið við ömurleg skilyrði. Þau síðustu rifin eftir kóleruna 1853. Engin fátækt þó í síðasta öngstrætinu, bara friðsæld og fegurð. Bindingsverkshúsið á myndinni frá 1753 er eitt hið flottasta í bænum, hýsir ítalskan veitingastað. Hér er gaman að borða, sérstök stemmning í húsinu, skakkir veggir, brakandi gólf og bestu pítsurnar í bænum ... 🍕 😀

Mynd dagsins (7). LITLA ÍSLAND í Kaupmannahöfn. Á Sankti Péturs stræti í Pissurennunni eru þrjú hús á nánast sama bletti...
10/11/2020

Mynd dagsins (7). LITLA ÍSLAND í Kaupmannahöfn. Á Sankti Péturs stræti í Pissurennunni eru þrjú hús á nánast sama bletti sem tengjast Íslandi sterkum böndum. Til vinstri er Guðrún‘s Goodies, nýtt kaffihús þar sem Guðrún selur flatkökur og íslenskt bakkelsi. Beint á móti er Café Salonen, vinsæll samkomustaður ungra Íslendinga í borginni, hugguleg stemmning og ódýr bjór í boði Kidda. Við hliðina á Salonen í brúna húsinu er svo síðasta heimili Jónasar Hallgrímssonar, þar er stiginn alræmdi sem felldi skáldið hinn afdrifaríka dag 21. maí 1845.

Adresse

København

Underretninger

Vær den første til at vide, og lad os sende dig en email, når Ferðir um Kaupmannahöfn sender nyheder og tilbud. Din e-mail-adresse vil ikke blive brugt til andre formål, og du kan til enhver tid afmelde dig.

Kontakt Virksomheden

Send en besked til Ferðir um Kaupmannahöfn:

Genveje

Del