Englandsferðir í fylgd heimamanna

Englandsferðir í fylgd heimamanna Ekki verður um fleiri Englandsferðir að ræða og síðunni verður lokað fyrir áramót 2017.

Just hanging out at Cogges Manor Farm.
22/05/2016

Just hanging out at Cogges Manor Farm.

LÖNG LYSTISEMDARHELGI Í GUILDFORDGóður hópur Íslendinga er á leið í langa lystisemdarhelgi með Englandsferðum í næstu vi...
11/05/2016

LÖNG LYSTISEMDARHELGI Í GUILDFORD
Góður hópur Íslendinga er á leið í langa lystisemdarhelgi með Englandsferðum í næstu viku.
Leiðsögumaður verður með hópnum alla daga og tekur á móti á flugvellinum. Starfsmaður ferðaskrifstofunnar, Iceland Traveller, verður á hótelinu þegar hópurinn kemur til að skrá sig inn.
Yfirlit yfir ferðina og önnur ferðagögn eiga að berast öllum ferðalöngum seinna í dag.
Svo nú er ekkert eftir nema hlakka til - og njóta hinna fögru sveita Englands!

01/04/2016

Kæru Englandsferðalangar,

undirbúningur fyrir komu ykkar til Guildford er í fullum gangi - og þar á meðal móttaka hópsins á Gatwick flugvelli. Til þess þarf upplýsingar um flugið (flugnúmer og komutíma) sem hver og einn kemur með. Einhverjir eiga eftir að senda Yvonne hjá Iceland Traveller þessar upplýsingar og eru þeir beðnir að senda henni þær sem allra fyrst.

Hlökkum til að sjá ykkur í Englandi, áður en langt um líður!

On a spring Saturday afternoon, I took the opportunity to take a wander through Kingston Town Centre.
13/03/2016

On a spring Saturday afternoon, I took the opportunity to take a wander through Kingston Town Centre.

VORIÐ ER KOMIÐ Í GUILDFORD - ENNÞÁ MÖGULEIKI AÐ KOMAST MEÐ ...Móttökurnar við langri lystisemdarhelgi í Guildford hafa v...
11/03/2016

VORIÐ ER KOMIÐ Í GUILDFORD - ENNÞÁ MÖGULEIKI AÐ KOMAST MEÐ ...

Móttökurnar við langri lystisemdarhelgi í Guildford hafa verið frábærar og góður hópur Íslendinga hefur þegar bókað sig í þessa Englandsferð í fylgd heimamannsins Glyn Jones.

Vorið er komið í Guildford eins og litrík blómin og laufgaður trjágróðurinn ber vitni um. Í maí, þegar hópurinn mætir á staðinn, verður orðið mun hlýrra og því enn ánægjulegra að njóta þeirrar útivistar og skoðunarferða sem boðið verður upp á.

Við vildum bara minna þá á sem enn eru að hugsa um að slást í hópinn að ennþá er möguleiki að komast með - þó með þeim fyrirvara að hægt sé að fá herbergi á fína hótelinu sem bókað er fyrir hópinn. SÍÐASTI FRESTUR ER 31. MARS n.k.
Best er að hafa samband við Yvonne til að fá upplýsingar um herbergi áður en bókað er: Yvonne Peach

Verð á flugferðum hækkar svo líka þegar nær dregur brottfarartíma, svo við hvetjum þá sem langar að koma með að bóka sem allra fyrst.

ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR, FYRIRSPURNAFORM OG BÓKUNARFORM ER Á VEFSÍÐUNNI OKKAR: www.englandsferdir.is

Hlökkum til að sjá ykkur í Guildford í maí!

Julia og Glyn Jones

23/02/2016

Address

Witney

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Englandsferðir í fylgd heimamanna posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share

Category