17/05/2024
„Það er þessi orka sem maður finnur fyrir í nálægð við Jökulinn og auðvitað náttúrufegurðin hérna í Snæfellsbæ.“
Ingunn Ýr Angantýsdóttir er búsett í Ólafsvík og er einn af aðstandendum Snæfellsjökulshlaupsins sem verður haldið í fjórtánda skipti í sumar. Ingunn Ýr nýtur þess að stunda útivist undir Jökli og reimar sjálf á sig hlaupaskóna þegar hún er ekki að skipuleggja utanvegahlaup fyrir marga af bestu hlaupurum landsins.
„Það er frábært að stunda útivist í Snæfellsbæ. Hér er mikið af fjölbreyttum leiðum að velja úr og allir geta fundið leið og umhverfi við hæfi. Ég hef hlaupið reglulega síðan ég hætti í frjálsum sem unglingur og hleyp meira á sumrin þar sem mér finnst skemmtilegra að hlaupa utan vegar en á malbikinu.“
„Það þarf ekki að fara langt til að komast í fallegt umhverfi hérna og það fer eiginlega eftir hvernig maður er stemmdur hvaða staðir eru í uppáhaldi hverju sinni. Ég hef mest verið í nærumhverfinu við Ólafsvík; á reiðveginum, við Ennið og á Jökulhálsinum. Mér finnst líka alltaf endurnærandi að fara í skógræktina hérna í Ólafsvík, en ég held þó að gönguleiðin milli Arnarstapa og Hellna sé ein af mínum uppáhalds. Ég hlakka líka til sumarsins og að kynnast nýjum leiðum hérna í nágrenninu, þær eru t.d. margar spennandi í þjóðgarðinum sem ég á eftir að prófa.“
„Uppáhalds hlaupaleiðin er auðvitað Jökulhálsinn en Snæfellsjökulshlaupið verður haldið í fjórtánda skipti í sumar og við Sigrún getum ekki beðið að fá alla þessa ofurhlaupara vestur. Það eru um 220 skráðir nú þegar, en hlaupið verður í næsta mánuði svo það fer hver að verða síðastur til að skrá sig.“