21/09/2026
Atvikavaktin – örnámskeið fyrir ferðaþjónustuaðila
Ferðaþjónustuaðilar á Vesturlandi eru hvattir til að kynna sér Atvikavaktina, nýtt miðlægt atvikaskráningarkerfi Ferðamálastofu sem ætlað er að styðja fyrirtæki í markvissu öryggisstarfi.
Atvikavaktin er fyrirtækjum að kostnaðarlausu og gerir þeim kleift að skrá slys, óhöpp og næratvik á einfaldan og samræmdan hátt. Með skráningunni geta fyrirtæki fengið betri yfirsýn yfir áhættu í eigin starfsemi, greint mynstur og nýtt upplýsingarnar til forvarna og stöðugra umbóta.
Næratvik geta veitt mikilvægan lærdóm áður en alvarlegt slys á sér stað og því er mikilvægt að skapa góða öryggismenningu þar sem einnig er lært af því sem næstum fór úrskeiðis.
Ferðamálastofa býður nú upp á 45 mínútna örnámskeið um Atvikavaktina, sérstaklega ætluð stjórnendum og millistjórnendum í ferðaþjónustu. Námskeiðin eru í boði á íslensku og ensku.
Námskeið á íslensku: 30. september kl. 13–13:45
Námskeið á ensku: 1. október kl. 13–13:45
Nánari upplýsingar um Atvikavaktina og námskeiðin, auk skráningar, má finna á heimasíðu Ferðamálastofu.
Við hvetjum ferðaþjónustuaðila á Vesturlandi til að kynna sér kerfið og nýta tækifærið til að efla öryggisstarf í eigin starfsemi.
Frekari upplýsingar í fyrstu athugasemd👇