18/11/2022
Orkuskipti Ice lagoon ehf eru hafin ⚡️
Ice lagoon ehf var stofnað árið 2011 af rafvirkjamenntuðum sveitadreng úr Suðursveitinni með það að markmiði að bjóða ferðir á Jökulsárlóni upp að jökulrönd Breiðarmerkurjökuls á sérútbúnum slöngubátum knúna áfram á 100% endurnýjanlegri orku.
Allt frá stofnun fyrirtækisins hefur verið unnið ötullega að því að finna lausnir til þess að knýja báta fyrirtæksins á endurnýjanlegri orku en fram til þessa að þá hafa bátar fyrirtæksins verið knúnir áfram á hefðbundu jarðefnaeldsneyti. Margar áskoranir hafa fylgt þessari vegferð í orkuskiptum á sama tíma og aðrar stórar áskoranir hafa verið í rekstri fyrirtæksins.
Við erum því einstaklega spennt og stolt yfir því að tilkynna hér með að sú framtíðarsýn sem fyrirtækið var stofnað á fyrir um 12 árum síðan sé nú loks að verða að veruleika, en við erum á lokametrunum með að vera tilbúin með sérútbúinn slöngubát sem er knúinn áfram af 100% rafmagni.
Þegar við hefjum aftur siglingar næsta vor þá munu okkar viðskiptavinir eiga kost á því að fara í bátsferð á rafmagnsbát um ævintýraveröld Jökulsárlóns án mengunar af völdum útblásturs og án hljóðmengunar.
Þetta er fyrsta skrefið en á sama tíma það stærsta í orkuskiptum fyrirtæksins að okkar mati. Næstu vikur munu fara í prófanir á bátnum og ef allt gengur upp þá munum við í framhaldi hefja þá vinnu að rafvæða alla farþegabáta fyrirtæksins með sama hætti. Þá mun Ice Lagoon ehf í náinni framtíð eingöngu bjóða upp á bátsferðir um Jökulsárlón knúnar áfram á 100% innlendri endurnýjanlegri orku.
Við hjá Ice lagoon erum mjög spennt fyrir framtíðinni því hún verður rafmögnuð 😊⚡️
Ice Lagoon is going electric ⚡️
The company Ice Lagoon ehf was founded in 2011 by a local guy from the countryside close by Jökulsárlón lagoon. The goal and future vision from the beginning of the company was to offer tours up to the glacier wall at Jökulsarlón glacial lagoon on specially equipped zodiac boats that would be powered 100% from renewable energy.
From the first days of the company we have been working hard on finding solutions to power our boats with renewable energy but until now our boats have been powered with traditional fossel fuel. We have faced many challenges on this road from starting the company and to where we are today.
Therefore, we are really proud and excited to announce that the vision that the company was founded on 12 years ago is finally taking place. At this moment we are building a customized zodiac boat that is powered 100% with renewable energy.
Spring 2023 our clients will have the option to experience the magical world at Jökulsarlón without exhaust polution and without noise polution.
While this is the first step in the company´s energy transistion it is also the biggest step in our opinion. In the next weeks we will run the boat through test trials and if everything goes according to plan our next step will be to repower all our passengers boats with this electrical solution. In the close future all the boat tours that Ice Lagoon will offer on Jökulsarlón lagoon will be powered by electricity – 100% domestic renewable energy.
We at Ice Lagoon are looking forward to the future – it will be electric 😊⚡️