Gagnvegur-leiðsögn á Norðurland vestra/Guided tours in North West Iceland

  • Home
  • Iceland
  • Hofsós
  • Gagnvegur-leiðsögn á Norðurland vestra/Guided tours in North West Iceland

Gagnvegur-leiðsögn á Norðurland vestra/Guided tours in North West Iceland Söguskjóðan sérhæfir sig í leiðsögn á Norðurlandi vestra. Einnig er boðið upp á sögustundur, ferðaskipulagningu, fyrirlestra og veislustjórn. Koma þá t.d.

Leiðsögn um Norðurland vestra og Vestfirði
Kristín Sigurrós Einarsdóttir
Grundarstíg 12, 550 Sauðárkróki
Sími: 867-3164 netfang: [email protected]
________________________________________
Ágæti viðtakandi! Með bréfi þessu langar mig að kynna þjónustu sem ég bíð upp á í formi leiðsagnar um Norðurland vestra og Vestfirði. Vorið 1997 útskrifaðist ég frá Farskólanum – miðstöð símenntunar á Norðurland

i vestra sem svæðisleiðsögumaður á Norðurlandi vestra og vorið 2011 frá Fræðslumiðstöð Vestfjarða sem svæðisleiðsögumaður á Vestfjörðum. Í fyrra flutti ég svo aftur í Skagafjörð eftir 17 ára fjarveru og hef nú hug á að nýta þessa þekkingu mína á svæðunum, en auk leiðsagnar hef ég unnið við fjölmiðlun og kennslu og tekið þátt í menningarlífi og hef því nokkuð yfirgripsmikla þekkingu á stöðunum.
Í sumar hef ég ásamt Sigrúnu Fossberg boðið upp á fastar gönguferðir kl 20:30 á kvöldin frá Sauðárkrókskirkju. Ferðirnar taka um einn og hálfan tíma og er boðið upp á leiðsögn á íslensku og ensku. Nýlega barst mér liðsauki, en Sigrún Fossberg á Sauðárkróki mun þróa þessar ferðir með mér og leiðsegja ásamt mér. Sigrún hefur tekið að sér leiðsögn fyrir Minjahúsið á Sauðárkróki. Hún hefur staðarvarðaréttindi frá Háskólanum á Hólum og er auk þess í meistaranámi í safnafræðum við HÍ.
Í vetur munum við bjóða upp á ferðir með leiðsögn fyrir hvers kyns hópa, svo sem starfsmannafélög, saumaklúbba, hvatahópa, viðskiptaheimsóknir, bændur, kóra, eldri borgara og hvaðeina. Einnig hef ég áhuga á að bjóða fram krafta mína í aðrar ferðir, svo sem lengri eða skemmri rútuferðir, og ferðir með fyrirtæki, hópa og félagasamtök. Ég hef einnig nokkra reynslu af veislustjórn og viðburðastjórnun og ef hópnum sýnist svo get ég tekið slíkt að mér. Loks hefði ég, í samvinnu við aðra ferðaþjónustuaðila eða þá sem við á, áhuga á því að skipuleggja pakkaferðir á eða um svæðið. upp í hugann handverksferðir, bókmenntaferðir, jarðfræðiferðir, menningarferðir eða heilsutengdar ferðir, svo eitthvað sé nefnt.
Þar sem reynsla mín af leiðsögn fyrir vestan, og þá einkum á Ströndum, sýnir að flestar fyrirspurnir og verkefni hafa borist í gegnum aðra ferðaþjónustuaðila á svæðinu, leyfi ég mér að senda ykkur þetta bréf í kynningarskyni og með von um gott samstarf í framtíðinni. Með vinsemd og virðingu
Kristín Sigurrós Einarsdóttir
Svæðisleiðsögumaður
Sími: 867-3164
Netfang: [email protected]

Er farin að taka niður pantanir fyrir ferðir með leiðsögn í vor/ sumar/ haust ⛰️ Norðurland vestra, Strandir, Vestfirðir...
16/02/2023

Er farin að taka niður pantanir fyrir ferðir með leiðsögn í vor/ sumar/ haust

⛰️ Norðurland vestra, Strandir, Vestfirðir, Dalir og Borgarfjörður
👥 ️️3-40 manna hópar
🗨 Hafið samband í síma 8673164 eða [email protected]
🤠 Klæðskerasniðnar ferðir fyrir hvern hóp

16/02/2023

Er farin að taka niður pantanir fyrir ferðir með leiðsögn í sumar.
Slóðir Guðrúnar frá Lundi
Klæðskerasniðnar ferðir að óskum viðskiptavina
3-40 manna hópar
Norðurland vestra, Strandir, Vestfirðir, Dalir, Borgarfjörður
[email protected]
Sími 8673164

25/04/2020

Vinsælasta ferðin okkar er DALALÍF-DAGSFERÐ UM SLÓÐIR GUÐRÚNAR FRÁ LUNDI.

Ferðina er hægt að klæðskerasníða að hverjum hóp fyrir sig, en til viðmiðunar eru hér þrjár útfærslur:

1. Ferð í Stíflu ca 2,5 tímar
Farið frá Ketilási (einnig hægt að hefja ferð á Sauðárkróki eða Hofsósi) og ekið í Stíflu.
Stoppað í Knappstaðakirkju og við bæinn Lund. Útsýnisstopp í Stífluhólum. Sagðar sögur í rútu og á áningarstöðum.
Hægt að bæta þjóðlegu nesti við ferðina (það inniheldur kaffi 2 tegundir af sætum kaffibrauði og 2 tegundir af smurðu kaffibrauði)
Einnig er hægt að bæta kjötsúpu, grillkjöti eða annarri máltíð við ferðina.

2. Ferð í Stíflu og Tungudal (
Farið frá Ketilási (einnig hægt að hefja ferð á Sauðárkróki eða Hofsósi) og ekið í Stíflu.
Stoppað í Knappstaðakirkju og við bæinn Lund. Útsýnisstopp í Stífluhólum.
Sagðar sögur í rútu og á stoppustöðum. Við bætist að fara í mynni Tungudals, en eyðibýlið Tunga er talið fyrirmyndin að Nautadal í Dalalífsbókunum. Ferja þarf hópinn á jeppa yfir ána.
Hægt að bæta þjóðlegu nesti við ferðina (það inniheldur kaffi 2 tegundir af sætum kaffibrauði og 2 tegundir af smurðu kaffibrauði)
Einnig er hægt að bæta kjötsúpu, grillkjöti eða annarri máltíð við ferðina.

3. Ferð um allan Skagafjörð 8-9 tímar.
Komið við á fjórum stöðum sem Guðrún bjó á í Skagafirði; Lundi í Stíflu, Enni á Höfðaströnd, Mallandi á Skaga, Sauðárkróki. Einnig í Ketukirkju og víðar.
Í þessari ferð er miðað við nesti á áningarstað, hádegismat og miðdegiskaffi á veitingarstöðum.
Einnig er hægt að bæta við kjötsúpu, grillkjöti eða annarri kvöldmáltíð í lok ferðar.

Innifalið í öllum ferðum er rúta og leiðsögn. Hægt er að taka farþega upp í rútuna á Sauðárkróki, Hofsósi eða Ketilási.



23/04/2019
Viltu koma með í ferð til fortíðar í sumar?Do you want to travel back in time this summer?
17/05/2018

Viltu koma með í ferð til fortíðar í sumar?
Do you want to travel back in time this summer?

Address

Austurgata 5
Hofsós
565

Telephone

+3548673164

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Gagnvegur-leiðsögn á Norðurland vestra/Guided tours in North West Iceland posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Gagnvegur-leiðsögn á Norðurland vestra/Guided tours in North West Iceland:

Share

Category