17/11/2022
"Mission Iceland er ný herferð fyrir íslenska ferðaþjónustu sem hvetur vongóða geimferðalanga til að hugleiða Ísland sem álitlegri áfangastað.
Geimferðalög njóta vaxandi vinsælda hjá ákveðnum hópi fólks. Erlendir ferðamenn á Íslandi líkja hins vegar Íslandsheimsókn iðulega við ferð til tunglsins eða til annarar plánetu. Skilaboðin eru einföld: Ísland er betri áfangastaður en geimurinn.
„Ísland er um margt líkt Mars. Ef Mars hefði heita potta,“ segir í myndbandi sem fylgir herferðinni. Í myndbandinu ber leikarinn Sveinn Ólafur Gunnarsson saman kosti þess að ferðast til Íslands og ferðast til geimsins, og samanburðurinn er iðulega Íslandi í vil. Ferðalagið er ódýrara, maturinn er ferskur en ekki frostþurrkaður, og nóg er af súrefninu."