01/06/2026
✨ Aðeins 1 herbergi eftir – einstök Maria Callas ferð til Gardavatns og Verona ✨
13.–20. júní býðst einstakt tækifæri fyrir tónlistarunnendur, söngáhugafólk og alla sem heillast af lífi og arfleifð hinnar ógleymanlegu Maria Callas. 🎶
Í þessari sérstöku ferð verður lífshlaup söngdívunnar rakið á slóðum hennar við hið töfrandi Gardavatn og í Verona, þar sem saga hennar, tónlistin og ítalska stemningin renna saman í ógleymanlega upplifun.
Dvalið verður við vatnið á hótelinu Conca d’Oro, rótgrónu og fjölskyldureknu hóteli sem stendur alveg niður við Gardavatn. Þaðan verður farið í skoðunarferðir, siglt um vatnið og heimsóttir staðir sem tengjast Maria Callas, meðal annars Sirmione þar sem hún og eiginmaður hennar áttu hús og dvöldu oft. 🌿
Síðustu tvær næturnar verða í Verona, þar sem haldið verður áfram að rekja frægðarspor Callas. Þar gefst einnig kostur á að upplifa stórbrotna sýningu á AIDA eftir Verdi – AIDA in CRISTALLO í hinum einstaka anda ítalskrar óperuhefðar. 🎭
Þetta er ferð fyrir þau sem vilja meira en hefðbundið frí – blöndu af tónlist, menningu, fegurð, fræðslu og ljúfri ítalskri upplifun við eitt fallegasta vatn Evrópu.
🚨 Við eigum aðeins 1 herbergi eftir í þessa einstöku ferð.
Fyrstur kemur, fyrstur fær. tryggðu þér síðasta herbergið áður en það hverfur.
Verð aðeins 292.010 á mann!
Bókaðu hér:
Einstök ferð fyrir tónlistar- og söngáhugafólk og einlæga Maria Callas aðdáendur. Lífshlaup söngkonunnar verður rakið í ferðinni og hennar minnst í öðru hverju orði.