Kraðak ehf

Kraðak ehf Kynntu þér málið á www.kradak.is

Atvinnuauglýsing – Kraðak leitar að leikkonumLeikhópurinn Kraðak leitar að tveimur leikkonum í hlutverk Grýlu í sýningun...
27/08/2025

Atvinnuauglýsing – Kraðak leitar að leikkonum

Leikhópurinn Kraðak leitar að tveimur leikkonum í hlutverk Grýlu í sýningunni Ævintýri í Jólaskógi.

📅 Æfingar hefjast 1. nóvember
🎭 Frumsýning: 22. nóvember
✨ Sýnt er daglega til 30. desember (utan 23.–26. des).

Tvær leikkonur skipta með sér sýningardögunum.

Við leitum að:
• Kraftmiklum og skapandi leikkonum með góða sviðsframkomu.
• Leikkonum sem taka þátt í gerð leikmyndar og leikmuna ásamt hópnum.
• Fólki sem hefur áhuga á að taka þátt í fjölskyldusýningu þar sem jólaævintýrið fær að lifna við úti í skógi.
• Reynsla í barnaleikhúsi og gamanleik er kostur, en ekki skilyrði.

Við bjóðum:
• Skemmtilegt og skapandi starf innan samheldins leikhóps.
• Tækifæri til að skapa eftirminnilegt hlutverk í einni vinsælustu jólasýningu ársins.

👉 Umsóknir og fyrirspurnir sendist á [email protected] og berist til Önnu Bergljótar fyrir 15. september.

Erum við að leita að þér?
07/03/2025

Erum við að leita að þér?

Kraðak leitar að sölumanni fyrir umboðsskrifstofuna sína. Starfið felst fyrst og fremst í samskiptum við viðburðahaldara í gegnum síma og tölvupóst með það að markmiði að finna skemmtiatriði sem henta hverjum viðburði fyrir sig. Kraðak mun setja í loftið nýja heimasíðu ....

Jólamóðir kemur í bíó á föstudaginn!Hurðaskellir og Skjóða ætla að heilsa upp á áhorfendur á föstudag og sunnudag í Samb...
15/11/2023

Jólamóðir kemur í bíó á föstudaginn!
Hurðaskellir og Skjóða ætla að heilsa upp á áhorfendur á föstudag og sunnudag í Sambíóunum.
Þið megið hjálpa okkur að láta orðið berast

Íslensk jólamynd í glænýrri útgáfu. Myndin fjallar um ævintýri Hurðaskellis, Skjóðu og allra hinna tröllanna í Grýluhelli.

26/12/2022

Jólamóðir er komin í bíó.
Glæný, íslensk, fjölskyldu- ævintýramynd komin á hvíta tjaldið. Ævintýrum Grýlu, Leppalúða, Hurðaskellis, Skjóðu og allra hinna í Grýluhelli gerð góð skil.
Þetta er sannkölluð fjölskylduskemmtun sem hentar einkar vel á jólum

17/12/2021
01/11/2021

Miðasala á Ævintýri í Jólaskógi er í fullum gangi.
Hér er smá upprifjun fyrir ykkur sem komuð í fyrra og smá kynning fyrir ykkur sem ekki þekkið Jólaskóginn.
Við segjum nýjar sögur á hverju ári svo sýningin er aldrei eins frá ári til árs.
"Það jólalegasta sem við fjölskyldan höfum nokkurn tímann gert"

17/10/2021

Tix.is er nýr miðasöluvefur sem selur miða á lifandi viðburði

Í dag og á morgun sýna vinir okkar hjá Jólasveinar síðustu sýningarnar á uppáhalds jólaleikritinu okkar, Ævintýri í Jóla...
28/12/2020

Í dag og á morgun sýna vinir okkar hjá Jólasveinar síðustu sýningarnar á uppáhalds jólaleikritinu okkar, Ævintýri í Jólaskógi.
Yndisleg upplifun fyrir alla fjölskylduna.
Þetta er úti í skógi - þú mætir með vasaljós- eltir jólakúlur , jólaskraut og luktir og á leiðinni hittir þú Skjóðu, Leppalúða, Grýlu og Hurðaskelli sem segja þér sögur úr Grýluhelli.
Sýningin hefur fengið frábærar viðtökur en uppselt hefur verið á fyrstu 320 sýningarnar. Nú eru bara 18 eftir og nokkrir miðar lausir í dag og á morgun.
Sýnt er fyrir 20 manna hópa í einu, utandyra og farið eftir sóttvarnarreglum í hvívetna.

Tix.is er nýr miðasöluvefur sem selur miða á lifandi viðburði

Oft var þörf en nú er nauðsyn - Lottuappið er komið á Playstore
05/04/2020

Oft var þörf en nú er nauðsyn - Lottuappið er komið á Playstore

🎉 LOTTUAPPIÐ ER KOMIÐ FYRIR ANDROID - TVÆR VIKUR FRÍAR 🎈

Þið finnið Lottuappið hér: https://play.google.com/store/apps/details?id=is.lotta.app

Kæru vinir, nú loksins geta eigendur Android snjalltækja sótt Lottuappið í Playstore og byrjað að horfa, hlusta og syngja með okkur. Allir þeir sem sækja appið fá fyrstu tvær vikurnar fríar án skuldbindingar, það eiga nú allir skilið að taka sér bara smá pásu. Endilega hjálpið okkur að láta þetta berast! :)

Eigendur iOS tækja þurfa því miður að bíða örlítið lengur þar sem við fengum neitun á iPad viðmótið en við erum hinsvegar komin á fullt í að finna út úr því og munum senda það frá okkur í aðra yfirferð von bráðar.

Leikhópurinn Lotta leitar að leikurum :)
19/02/2020

Leikhópurinn Lotta leitar að leikurum :)

Leikhópurinn Lotta leitar að tveimur leikurum, karli og konu, til að taka þátt í sýningu sumarsins, Bakkabræðrum.

Æfingar hefjast 1. apríl og frumsýnt verður þann 27. maí. Sýnt er á nánast hverjum degi út ágústmánuð en allir leikarar fá um það bil þriggja vikna sumarfrí á tímabilinu.

Mikilvægt er að viðkomandi hafi menntun og/eða mikla reynslu af sviðslistum og sé vanur/vön að koma fram en sýningar Lottu eru sýndar fyrir yfir 20.000 manns ár hvert. Þá setjum við skilyrði um sjálfstæði í vinnubrögðum, auk þess sem viðkomandi þarf að eiga gott með að vinna í hóp. Í sýningum hópsins er einnig mikið af lögum og því er gerð krafa um að leikarar geti sungið.

Leikhópurinn Lotta hefur verið starfræktur frá árinu 2007 og hefur á tímabilinu sett upp 13 stórar leiksýningar utandyra og 3 innandyra. Sýndar eru um 100 sýningar yfir sumarið á um 50 stöðum á landinu svo starfinu fylgir mikil keyrsla og ferðalög.

Umsókn og ferilskrá skal skilað með tölvupósti á netfangið [email protected] ekki seinna en 1. mars. Þeir sem uppfylla skilyrðin og þykja henta í hlutverkin verður boðið í viðtal / prufur. Allir fá skriflegt svar, bæði við móttöku umsóknar og síðar um niðurstöðu hennar.

Frekari upplýsingar veitir Anna Bergljót Thorarensen í síma 698-1293 og með tölvupósti á [email protected].

Address

Kópavogsbrún 1
Kópavogur
200

Telephone

+3547775500

Website

http://www.jolasveinar.is/

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Kraðak ehf posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share