14/10/2026
GeoCamp Iceland er á meðal þeirra fyrirtækja og stofnana sem hljóta viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar árið 2026 fyrir árangur í að jafna kynjahlutfall í stjórnunarstöðum.
Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni á vegum Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA) sem hefur það að markmiði að stuðla að jafnari stöðu kynjanna í atvinnulífinu og auka fjölbreytni í stjórnunarstöðum. Viðurkenningin er veitt fyrirtækjum, stofnunum og sveitarfélögum sem náð hafa góðum árangri í þessum efnum.
GeoCamp Iceland er lítið, fjölskyldurekið fyrirtæki sem starfar á sviði fæðslu, vísindamiðlunar og fræðslutengdrar ferðaþjónustu. Fyrirtækið vinnur með skólum, háskólum og samstarfsaðilum, bæði á Reykjanesinu sem og erlendis, við þróun námsverkefna og vettvangsnáms, auk þess að taka virkan þátt í innlendum og alþjóðlegum þróunarverkefnum.
Jafnrétti, fjölbreytni og jöfn tækifæri eru mikilvægir þættir í starfsemi GeoCamp Iceland, bæði innan fyrirtækisins og í þeim verkefnum sem það tekur þátt í. Við erum því stolt af viðurkenningunni og lítum á hana sem hvatningu til að halda áfram að skapa gott, fjölbreytt og jafnréttismiðað starfsumhverfi.
Jafnrétti sem fær að vaxa
Í tilefni viðurkenningarinnar gróðursetti Sigrún Svafa Ólafsdóttir tré í Jafnréttislundinum í Heiðmörk fyrir hönd GeoCamp Iceland. Lundurinn er lifandi tákn um jafnrétti, fjölbreytni og sjálfbærni og minnir á mikilvægi þess að hlúa að þeim gildum til framtíðar.
Fyrir fyrirtæki sem byggir starfsemi sína á tengslum fólks, náttúru og menntunar er þetta sérstaklega skemmtileg leið til að fagna viðurkenningunni. Rétt eins og tré þurfa góð skilyrði til að vaxa og dafna, þarf jafnrétti að byggjast á meðvituðum ákvörðunum, umhyggju og langtímahugsun.
Við erum stolt af viðurkenningunni og þökkum Jafnvægisvoginni fyrir hvatninguna. Ekki síður þökkum við okkar frábæra starfsfólki sem hefur lagt sitt af mörkum til að skapa vinnustað þar sem allir hafa jöfn tækifæri til að vaxa, leiða og hafa áhrif.
Jafnrétti er ekki verkefni sem lýkur heldur stöðug vinna. Við ætlum að halda áfram á þeirri vegferð og gera enn betur.
Við óskum öllum öðrum viðurkenningarhöfum Jafnvægisvogarinnar 2026 innilega til hamingju!