13/09/2026
Event by Svavar Knutur, Jaakko Laitinen & Väärä Raha and Hjalli Kjós Aðgangseyrir inn á tónleikana er litlar 4.000 krónur
Miðar á:
stubb.is/events/o05rRb
Finnlandsvinir og aðdáendur balkantónlistar í Kjós og nærsveitum (það gríðarstóra sniðmengi) geta glaðst heiftarlega laugardagskvöldið 7. nóvember næstkomandi, því þá mun finnska hljómsveitin Jaakko Laitinen & Väärä Raha leika listir sínar í hlöðunni á Hjalla.
Jaakko Laitinen og vinir hans hafa síðan 2009 heillað áhorfendur vítt og breitt um Evrópu og eiga mikilli velgengni að fagna í heimalandinu og eins og allir vita kemur gott eitt frá Finnlandi.
Það er vinur Jaakko, Svavar Knútur, sem dregur þetta fríða föruneyti á skerið og mun hann, fyrir þrábeiðni Jaakkos, taka nokkur lög til upphitunar.
Kvöldið verður þó nær algerlega í höndum hinna dásamlegu Finna sem hafa marinerað sál sína í balkneskum spíra sem eimaður var í gömlum Trabant.