Ferðaþjónusta í Árneshreppi

Ferðaþjónusta í Árneshreppi Á þessari síðu er hægt að finna það sem í boði er fyrir gesti Árneshrepps. Úrval af gistingu, veitingarhúsum, verslun og afþreyingum.

Verið öll hjartanlega velkomin í Árneshrepp. Veljið "myndir" til þess að sjá hvað er í boði.

Húsið sem nú er Hótel Djúpavík var byggt á 3ja áratug síðustu aldar fyrir konur sem unnu á söltunarplaninu við söltun sí...
03/05/2023

Húsið sem nú er Hótel Djúpavík var byggt á 3ja áratug síðustu aldar fyrir konur sem unnu á söltunarplaninu við söltun síldar. Þá kallaðist það Kvennabragginn. Það var síðan gert upp árið 1985 og það sumar komu síðan fyrstu gestirnir á hótelið.

Á efri hæð hótelsins eru 8 hlýleg tveggja manna herbergi með handlaugum. Á gangi eru snyrtingar með karla- og kvennasalernum og steypiböðum.

Sumarhúsið okkar, Álfasteinn, er fyrir aftan gömlu síldarverksmiðjuna, rétt fyrir neðan Djúpavíkurfoss. Það er frábært fyrir fjölskyldur eða litla hópa, allt að 7 manns, sem óska þess að vera meira út af fyrir sig. Í Álfasteini, sem er á tveimur hæðum, eru 4 svefnherbergi (þrjú tveggja manna og eitt eins manns herbergi), 2 salerni, sturta og lítill elhúsaðstaða.

Öll herbergin eru með uppábúnum rúmum.

Við bjóðum upp á morgunverðarhlaðborð og kvöldmat í matsal sem er mjög sérstakur og fallegur fyrir gesti og gangandi. Kaffi og te eru frítt og súpa, brauð og kökur eru á boðstólum yfir daginn, ásamt léttum veitingum í hádeginu. Upplýsingar eru á heimasíðu okkar http://djupavik.is/ Hægt er að bóka gistingu í síma 451-4037 eða senda tölvupóst á netfangið [email protected]

Siglingar á Hornstrandir og víða. -Norðurfjörður-Drangar-Skjaldabjarnarvík-Reykjarfjörður-Furufjörður-Bolungarvík-Barðsv...
03/05/2023

Siglingar á Hornstrandir og víða.
-Norðurfjörður
-Drangar
-Skjaldabjarnarvík
-Reykjarfjörður
-Furufjörður
-Bolungarvík
-Barðsvík
-Smiðjuvík
-Látravík Hornbjargsviti
-Hornvík
Upplýsingar veittar: [email protected]
https://www.strandferdir.is/

Kaffi Norðurfjörður - Komið og fáið dýrindis máltíð eða léttar veitinga á Kaffi Norðurfirði. Opnar 5. júní og er opnunar...
03/05/2023

Kaffi Norðurfjörður - Komið og fáið dýrindis máltíð eða léttar veitinga á Kaffi Norðurfirði. Opnar 5. júní og er opnunar tíminn 12:00-21:00 í allt sumar.
https://www.facebook.com/KaffiNordurfjordur/

Boðin er gisting í tveimur húsum; Annars vegar tvö rúmgóð herbergi á jarðhæð í íbúðarhúsi eigenda með þremur rúmstæðum h...
03/05/2023

Boðin er gisting í tveimur húsum; Annars vegar tvö rúmgóð herbergi á jarðhæð í íbúðarhúsi eigenda með þremur rúmstæðum hvort. Sameiginlegur inngangur er með íbúð eigenda á annarri hæð. Að öðru leyti aðskilið . Sameiginlegt fyrir þessi tvö hergbergi, snyrting, lítið eldhús. Sjónvarp er í báðum herbergjum.

Hins vegar er gisting í frystihúsi, sem var byggt í tengslum við sláturhús á staðnum, og var notað sem slíkt í þrjátíuár. Tímarnir breytast og svo er komið árið 1992, að ekki er lengur þörf fyrir frystihús. Fyrir nokkrum árum réðust eigendur hússins, í að breyta því í gistihús, og hefur það verið notað. Í húsinu eru þrjú herbergi, (klefar) notuð fyrir gistingu. Kojur eru herbergjunum, sem eru misstór, átta kojur í stærsta herberginu og s*x í hvoru hinna tveggja, samtals tuttugu. Í kojunum, sem eru á tveimur hæðum, eru góðar dýnur. Handlaugar eru í herbergjunum. Snyrting er einnig í húsinu. Rúmgott eldhús er og mjög góð eldunaraðstaða . Sjónvarp er í matsal.
Húsið hefur verið vinsælt fyrir hópa og einstaklingar gista þar líka. Upplýsingar á heimasíðu okkar http://www.bergistangi.is/

Veitingasala er ekki. Stutt er í þá þjónustu, einnig í verslun og bankaþjónustu.

Urðartindur er fjölskyldurekin gistiaðstaða fjarri ysi og þysi í einstaklega fallegu umhverfi Norðurfjarðar. Boðið er up...
03/05/2023

Urðartindur er fjölskyldurekin gistiaðstaða fjarri ysi og þysi í einstaklega fallegu umhverfi Norðurfjarðar. Boðið er upp á gistingu í herbergjum með baði og sumarhúsum, ásamt tjaldstæði.
Urðartindur Norðurfirði býður upp á tvö nýbyggð 25 m2 sumarhús með svefnaðstöðu fyrir 2-4 (hjónaherbergi og svefnsófi í stofu). Í hverju húsi er eldhúsborð og fjórir stólar, stofa með tveggja manna svefnsófa og eldurnaraðstaða. Einnig baðherbergi með sturtu. Heitt og kalt rennandi vatn. Hverju húsi fylgir einnig grill og borð og stólar á veröndinni - tilvalið að sitja þar og njóta útsýnisins.
Hlöðuloft
Það eru fjögur herbergi á gamla hlöðuloftinu. Hvert herbergi hefur eigið baðherbergi með sturtu, tvöfalt rúm, borð og stóla, ísskáp og hraðsuðuketil. Á svölunum eru borð og stólar fyrir hvert herbergi. Upplýsingar á heimasíðu okkar https://urdartindur.is/is/.

Víóludúóið Duo Borealis skipað Önnu Hugadóttur og Annegret Mayer-Lindenberg fer í tónleikaferð um Vesturland og til Þýsk...
03/05/2023

Víóludúóið Duo Borealis skipað Önnu Hugadóttur og Annegret Mayer-Lindenberg fer í tónleikaferð um Vesturland og til Þýskalands í tilefni 20 ára starfsafmælis. Leikið verður á óhefðbundnum tónleikastöðum og mismunandi hljómburður staðanna nýttur til hins ítrasta. Þær munu halda tónleika í gömlu síldarverksmiðjunni í Djúpavík þann 15. júlí klukkan 21:15. Frítt er inná tónleikana eða frjáls framlög.

Á morgun 21. júli mun Tónlistartríóið Fáheyrt vera með tónleika  í Djúpavík og ætla þau að spila fyrir gesti og gangandi...
20/07/2021

Á morgun 21. júli mun Tónlistartríóið Fáheyrt vera með tónleika í Djúpavík og ætla þau að spila fyrir gesti og gangandi kl: 13:00 inní gömlu síldarverksmiðjunni og svo aftur um kvöldið kl:21:00 inná hótelinu sjálfu. Verið öll velkomin að hlusta á þessa snillinga.
Í tríóinu eru Þau: Rakel Björk Björnsdóttir leik- og söngkona við Borgarleikhúsið, Garðar Borgþórsson gítar- og trommuleikari og Ingimar Ingimarsson organisti.
Frír aðgangseyrir eða frjáls framlög.

Urðartindur býður nú uppá fjögur ný herbergi í Norðurfirði. Áður voru þar gömul fjárhús, en framkvæmdir við þessar breyt...
06/07/2021

Urðartindur býður nú uppá fjögur ný herbergi í Norðurfirði. Áður voru þar gömul fjárhús, en framkvæmdir við þessar breytingar hófustu vorið 2019.
Með þessari viðbót getum við því boðið upp á 8 herbergi og 2 smáhýsi fyrir ferðafólk hvaðanæva að úr heiminum.

Flott tjaldstæði er í Ófeigsfirði með aðgengi að salerni. Nóttin kostar 1.300 kr. á mann fyrir 12 ára og eldri
05/07/2021

Flott tjaldstæði er í Ófeigsfirði með aðgengi að salerni. Nóttin kostar 1.300 kr. á mann fyrir 12 ára og eldri

Flott tjaldstæði er í Ófeigsfirði með aðgengi að salerni. Nóttin kostar 1.300 kr. á mann fyrir 12 ára og eldri.

05/07/2021

Address

Árneshreppur
Norðurfjörður
524

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Ferðaþjónusta í Árneshreppi posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share

Category