21/11/2012
Fuglaskoðun yfir vetur
Andfuglar eru áberandi meðfram strönd Vestfjarða yfir vetrarmánuðina má og þá helst nefna æður, straumönd og hávellu.
Dílaskarfur og toppskarfur dreifir sér um alla Vestfirði en það getur verið svæðisbundið hvar tegundirnar eru.
Snjótittlingar eru áberandi í byggð þegar kalt er í veðri og hvít jörð. Rjúpur eiga það til að koma niður í byggð en einnig má ganga að þeim vísum á vissum stöðum þar sem veiðar eru bannaðar.
Vetrargestir eru hér t.d. bjartmáfur. Hann er líklega í þúsunda tali á Vestfjörðum.
Sjaldgæfari vetrargestir eru gráhegri, svartþröstur og silkitoppur.
Stærsti hluti vaðfuglastofnsins er farin af Vestfjörðum í lok september. Það er því ekki mikið að sjá af vaðfuglum í fjörum á Vestfjörðum frá október til mars.
Heimild: NAVE