Bella Italia - Róm & Villur á Ítalíu

Bella Italia - Róm & Villur á Ítalíu www.bellaitalia.is 🇮🇹🤌🍷🛵

🏡Villur & hús víðs vegar um um Ítalíu

Sæl Hildur, Langaði að senda þér línu og þakka þér fyrir að hjálpa okkur að gera Rómar ferðina okkar ógleymanlega. Golfb...
14/09/2026

Sæl Hildur,

Langaði að senda þér línu og þakka þér fyrir að hjálpa okkur að gera Rómar ferðina okkar ógleymanlega. Golfbílatúrinn var frábær og Alex sem keyrði okkur um allt alveg yndislegur.

Matreiðslunámskeiðið var alveg stórkostlegt og mikil upplifun fyrir fermingardrenginn og okkur líka!

Takk kærlega fyrir alla hjálpina og við mælum svo sannarlega með þér til allra sem eru að fara til Rómar ❤️

⭐⭐⭐⭐⭐Við vorum mjög ánægð með þjónustu Bella Italia. Við fengum mjóð góðar og skýrar upplýsingar fyrir og við bókun og ö...
11/09/2026

⭐⭐⭐⭐⭐
Við vorum mjög ánægð með þjónustu Bella Italia. Við fengum mjóð góðar og skýrar upplýsingar fyrir og við bókun og öll samskipti voru til fyrirmyndar.
Húsið, steðsetninginn og öll aðstaða var frábær. Við eiginlega trúðum því ekki en allt var eins eða betra en við höfum séð á myndunum. Það var mjög gott að hitta starfsmann hjá húsinu við upphaf og enda dvalarinnar og eigendur hússins væru frábær.

Við nýttum okkur þjonustu Bella Italia og pöntuðum kokk sem kom og eldaði besta mat sem við höfum nokkrn tímann smakkað. Gabríel var frábæt, hann kom undirbjó allt, lagði fallega á borð og reiddi svo fram 4ra rétta veislu og gekk frá. Algjörlega geggjuð þjónusta og matur sem við mælum 100% með. Við pöntuðum líka í vínsmökkun gegnum Bella Italia og það var frábært. Öll samskipti og þjónusta var til fyrirmyndar.

🏡https://www.exclusiveitalianvillas.com/en/detail/a96e66ba-040a-4232-9710-2d5f7334557a/CKTEZ4ZRT3E94ZU6?Adults=1

📍Umbria - Perugia - CITTA' DELLA PIEVE

🇮🇹 Róm með Bella Italia 🇮🇹Leyfðu okkur að gera Rómarferðina enn betri! Vatíkanið, Colosseum, matur, menning, gönguferðir...
09/09/2026

🇮🇹 Róm með Bella Italia 🇮🇹

Leyfðu okkur að gera Rómarferðina enn betri! Vatíkanið, Colosseum, matur, menning, gönguferðir, akstur frá flugvelli og fjölbreyttar upplifanir. Við hjálpum þér að skipuleggja Róm frá A–Ö

Róm ❤️🇮🇹

📩 [email protected]
🌐 www.bellaitalia.is

⭐⭐⭐⭐⭐Sæl HildurNú er fjölskyldan komin heim eftir frábæra ferð til Ítalíu. Mig langar að þakka þér sérstaklega fyrir all...
17/08/2026

⭐⭐⭐⭐⭐
Sæl Hildur
Nú er fjölskyldan komin heim eftir frábæra ferð til Ítalíu. Mig langar að þakka þér sérstaklega fyrir alla þína aðstoð. Við erum rosalega þakklát fyrir húsið sem við völdum og sundlaugin og umhverfið í kringum hana var alveg frábært.

Gabriel kokkur gerði afmæliskvöldið ógleymanlegt og myndirnar frá Paolo munu ilja okkur um ókomin ár. Allt þetta hefði ekki orðið svona gott án þín. Við erum öll alsæl með þetta.

Bestu þakkir, og knús
Hjördís og fjölskylda.

⭐⭐⭐⭐⭐Við mælum heilshugar með Bella Italia. Við eyddum dásamlegri viku í Casa da Sogno núna í ágúst. Hildur var okkur in...
13/08/2026

⭐⭐⭐⭐⭐
Við mælum heilshugar með Bella Italia. Við eyddum dásamlegri viku í Casa da Sogno núna í ágúst. Hildur var okkur innan handar við val á húsi auk annarrar þjónustu. Hún svaraði öllum fyrirspurnum okkar hratt og örugglega.

Húsið var rúmgott og rúmaði vel 11 manna stórfjölskyldu. Sundlaugin var draumur og aðstaðan í kringum hana til fyrirmyndar. Útsýnið var algjörlega stórkostlegt.

Í tilefni stórafmælis í ferðinni þá bókaði Hildur fyrir okkur kokkinn Gabriele. Hann kom tvisvar upp í hús og eldaði ítalska veislu sem gerði ferðina enn þá eftirminnilegri. Gabriele er algjör fagmaður í sínu fagi og með einstaklega hlýja og góða nærveru.

Takk kærlega fyrir okkur og að hafa gert þessa draumaferð að veruleika.

📍Tuscany - Pisa - ORCIANO PISANO
🏡 https://www.exclusiveitalianvillas.com/en/detail/a96e66ba-040a-4232-9710-2d5f7334557a/7N7N37E6MDAG2TNM?Adults=1

11/08/2026

Sumar 🏖☀️👙🇮🇹👌

⭐⭐⭐⭐⭐Við viljum bara senda á þig og þakka fyrir frábæra þjónustu og aðstoð við frábæru ferðina okkar til Ítalíu. Þetta v...
09/08/2026

⭐⭐⭐⭐⭐
Við viljum bara senda á þig og þakka fyrir frábæra þjónustu og aðstoð við frábæru ferðina okkar til Ítalíu.
Þetta var fyrsta reynsla okkar af þessu fallega landi og féllum alveg fyrir því og komum til með að koma aftur 😄
Húsið stóðst allt sem við óskuðum okkur, Eddy kokkur var frábær og allt annað.

📍Marche - Ascoli Piceno - ASCOLI PICENO

🏡https://www.exclusiveitalianvillas.com/en/detail/a96e66ba-040a-4232-9710-2d5f7334557a/9TYKKYX9ZVXUNJCQ?Adults=1

⭐⭐⭐⭐⭐Húsið var alveg æðislegt. Allt í mjög góðu standi og stóðst allar okkar væntingar. Vorum mjög ánægð með að geta lok...
23/07/2026

⭐⭐⭐⭐⭐
Húsið var alveg æðislegt. Allt í mjög góðu standi og stóðst allar okkar væntingar. Vorum mjög ánægð með að geta lokað út í sundlaugina, hún var alveg afgirt sem er mikill kostur með lítil börn. Það kom líka mjög vel út að hafa tvær hæðir og utangengt upp á aðra hæð. Stórbrotið útsýni, dádýr í skóginum og villigrísir kíktu í heimsókn sem var svaka skemmtilegt. Blómin í kringum húsið voru svo falleg og garðurinn virkilega vel við haldinn.

Húseigendur voru mjög almennilegir og hjálplegir.

Við vorum mjög ánægð með þjónustu Bella Italia í gegnum allt ferlið, alveg frá bókun og svör við ýmsum spurningum sem við höfðum fram að ferðinni. Öll samskipti góð og skýr. Mjög gott að hafa tengilið á íslensku í svona ferð.

Gabriele kokkur var alveg frábær, greinilega fagmaður í faginu. Maturinn var æðislegur og vel framsettur. Gabriele sá alveg um allt frá a-ö og tímasetningar stóðust alveg 100%. Hann pakkaði svo afgöngum inn og allt. Gabriele var skemmtilegur og þægilegur í umgengni.

Við þökkum bara kærlega fyrir okkur og getum sannarlega mælt með þér og þinni þjónustu :)

⭐⭐⭐⭐⭐Við fjölskyldan eyddum yndislegri viku í Villa Dolce Far Niente í júlí og getum heilshugar mælt með Hildi og þjónus...
20/07/2026

⭐⭐⭐⭐⭐
Við fjölskyldan eyddum yndislegri viku í Villa Dolce Far Niente í júlí og getum heilshugar mælt með Hildi og þjónustu hennar. Hildur sá um allt sem við þurftum fyrir ferðina og gerði það að verkum að við gátum algjörlega slakað á og notið okkar.

Húsið var dásamlegt, staðsetningin frábær og öll þjónusta í kringum húsið til fyrirmyndar. Hildur sá um bókanir, samskipti og skipulagningu og var alltaf til staðar þegar á þurfti að halda, ásamt því að veita upplýsingar um veitingastaði og aðra þjónustu á svæðinu.

Hún bókaði meðal annars vínsmökkun fyrir okkur og ljósmyndara sem kom í villuna – og við vorum rosalega ánægð með hvort tveggja. Í tilefni stórafmælis í ferðinni bókaði Hildur einnig kokk sem kom í villuna og eldaði ítalska veislu fyrir okkur og lagði mikið í að gera afmælið sérstakt. Það var einstaklega skemmtileg upplifun og gerði ferðina enn eftirminnilegri.

Þegar við lentum svo í smá veseni með bílaleiguna nokkrum dögum fyrir brottför reddaði Hildur okkur algjörlega og sá til þess að allt gekk sem smurð vél. Við erum ótrúlega ánægð með ferðina og sérstaklega þjónustuna frá Hildi. Við mælum hiklaust með Hildi og munum án efa leita aftur til hennar þegar við skipuleggjum næstu ferð!

📍San Ginesio, Macerata , Italy

Þótt við þjónustum fyrst og fremst íslenska ferðalanga er alltaf sérstaklega ánægjulegt að fá að taka á móti okkar trygg...
19/07/2026

Þótt við þjónustum fyrst og fremst íslenska ferðalanga er alltaf sérstaklega ánægjulegt að fá að taka á móti okkar trygga hópi bandarískra viðskiptavina. Það er okkur sannur heiður að fá að skipuleggja fríið þeirra og sjá þau snúa aftur til Ítalíu ár eftir ár

⭐⭐⭐⭐⭐
We stayed for two weeks at Villa Casa Nuova with our family of 14, including two babies and four teenagers, and had a fabulous time that will never be forgotten.

The villa had plenty of comfortable, air-conditioned bedrooms and bathrooms, and we spent most of our time enjoying the beautiful pool, outdoor dining area, and the many lovely places to sit and relax. Watching the World Cup together on the large TV in the living room was another highlight!

Vitulia and her friend were wonderful, taking care of both the cooking and cleaning. Chef Gabriele gave us a fantastic pasta-making experience followed by an incredible multi-course dinner, and photographer Gabriele captured beautiful family photos that we'll treasure forever.

Hildur, the property manager, was always available on WhatsApp and incredibly responsive whenever we had questions or needed assistance.

We wholeheartedly recommend Villa Casa Nuova and Bella Italia to anyone looking for an unforgettable family holiday in Tuscany 🇮🇹
❤️

VILLA CASA NUOVA - SAN CASCIANO DEI BAGNI - TUSCANY

Address

Reykjavík

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Bella Italia - Róm & Villur á Ítalíu posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Bella Italia - Róm & Villur á Ítalíu:

Shortcuts

Featured

Share

Category