12/04/2022
Vegna vaxandi umsvifa þurfum við að bæta við okkur þýskumælandi leiðsögumönnum og ekki síður ökuleiðsögumönnum fyrir árið 2022. Um er að ræða ferðir með þýskumælandi hópa af ýmsum stærðum og gerðum - dagsferðir frá Reykjavík, stuttar og langar hringferðir, sumar með gönguferðum. Endilega hafðu samband og kíktu í kaffi á Grensásveginn ef þú ert þýskumælandi leiðsögmaður og vilt bæta við þig skemmtilegum verkefnum. Ef þú ert ekki þýskumælandi leiðsögumaður, en þekkir einhvern slíkan, þá máttu gjarnan láta orðið berast!
Nánari upplýsingar má fá í síma 561 7550 og með því að hafa samband við Ramonu Pittroff: [email protected]
Katla DMI er ferðaskrifstofa sem hefur skipulagt ferðir af öllu tagi fyrir þýskumælandi ferðamenn í aldarfjórðung. Ferðaþjónustan er nú að taka kröftulega við sér eftir sögulega lægð af völdum heimsfaraldursins og við hlökkum til að taka upp þráðinn, þar sem frá var horfið!