11/09/2026
🎄Jólin byrja á Miðhrauni 🎄
Ekki eru ráð nema í tíma séu tekin – og nú er víst komið að því að bóka jólahlaðborðið!
Við á Miðhrauni höfum opnað fyrir bókanir á jólahlaðborðið okkar í Hlöðunni. Við bjóðum einstaklingum og fyrirtækjum að njóta hátíðlegrar kvöldstundar í Hlöðunni með glæsilegu jólahlaðborði, lifandi tónlist, og notalegri jólastemningu.
Hægt er að bóka einka jólahlaðborð fyrir fyrirtæki og hópa með 80–100 gesti.
Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðunni okkar
Njóttu hátíðlegs jólahlaðborðs á Miðhrauni með hefðbundnum réttum, lifandi tónlist og notalegri jólastemningu. Tryggðu þér sæti í dag!