02/04/2021
Fallegur dagur í dag á föstudaginn langa. Notaði tækifærið og fór í létta gönguferð sem hófst við Kaplagjótu þar sem ég þræddi kindagötur ofan við Tíkartær þar til komið var upp á Hvíld. Þaðan lá leiðin skáhalt upp á við til austurs þar Blátindi var náð. Með mér í för var hundspottið Shelby sem var seig í fjallgöngunni og tók sig bara nokkuð vel út á toppi Blátinds. Siðan var skondrað niður sem leið liggur göngustíginn nýja af Eggjum.