19/05/2026
Í Sinalunga og Casa Maria ríkir ró og friður, bærinn er vel staðsettur í dásamlega fallegri sveit og í nágrenni bæjarins er mikið af göngu- og hjólaleiðum sem enginn verður svikinn af. Sinalunga er ekki dæmigerður ferðamannabær heldur upplifir maður þar heimafólkið í litlum ítölskum bæ þar sem heldri borgarar sitja á torginu og löngum stundum og tíminn virðist hreinlega standa í stað. Á aðaltorginu er kaffibar, þrír litlir veitingastaðir og pizzustaður, bakarí, apótek, banki og hægt að kaupa sér ekta ítalskan ís. Leikhús er starfrækt í bænum og á torginu eru fjórar kirkjur og Palazzo Pretorio sem er frá miðöldum, sem fyrst var stjórnarráðshús og síðar fangelsi og dómshús. Í nokkurra mínútna göngufæri frá íbúðinni er sundlaug sem er opin á sumrin. Í kringum Sinalunga eru jarðhitasvæði og þar er hægt að fara í jarðböð og slaka á og njóta fallegrar náttúru í leiðinni.
Í nærumhverfinu má finna vínsmökkun, skoða vínframleiðslu , borða ljúffengan mat, njóta náttúrunnar og ekki síðast en síst listarinnar sem Ítalía hefur upp á að bjóða. Frá Sinalunga er auðvelt að heimsækja litla bæi eins og Cortona, Montepulciano, Monteriggione, Pienza og Lucigniano en einnig er stutt til Assisi, Siena, Arezzo, Perugia og Flórens.
Það er lítil lestarstöð í Sinalunga sem er gott að geta notað en svo er auðvelt að leigja bíl eða nota rútuferðir á milli staða. Eins er stutt að fara með bíl til Lago Trasimeno (vatn á mörkum Toskana héraðs og Úmbríuhéraðs) þar er hægt að hjóla í kringum vatnið og eins fara á “ströndina” eða skella sér í bátsferð og skoða eyjurnar Isola Maggiore, Isola Minore, Isola Polvese.
Ennfremur er hægt að leigja hjól, rafmagnshjól eða vespur.