12/08/2018
Hefur þú áhuga á að fara í hjólaferð í Ungverjalandi í júní 2019? Spennandi 15 daga ferð með skemmtilegum dögum í Búdapest og 10 daga hjólaferð umhverfis Balatonvatnið.
Verð í tveggjamanna herbergi er 2,497 USD og í einsmannsherbergi er 2,783 USD.
Innifalið í verðinu er 14 nætur á hóteli með morgunverði, 13 kvöldverðir, 1 hádegisverður, hjól í 10 daga, 2 skoðunarferðir í Búdapest og nágreni og flug frá Keflavík til Búdapest (ca. 7-8 klst.).
Ef þú hefur áhuga eða villt nánari upplýsingar, hafðu þá samband við okkur á tölvupóstfangið [email protected].
8. júní 2019. Búdapest
Við leggjum af stað kl. 14.15 frá Íslandi með Lufthansa og millilendum í München á leið til Budapest Áætluð koma til Ungverjalands er um kl. 22.50. Í Budapest gistum við á Hotel Medosz, sem er skammt frá Andrassy Bulevard.
9. júní 2019 Budapest
Skoðunarferð. Við notum hluta dagsins í að skoða Budapest með leiðsögn. Þar er mikið að sjá, svo sem, Konungshöllina, Matthíasar gosbrunnurinn, Mattíasarkirkjuna og frábært útsýni yfir borgina. Auk þess þinghúsið, sem er eitt af kennimerkjum Budapest og síðan höldum um borgina og skoðum merka staði í sögu Ungverjalands. Um kvöldið göngum við svo um bakka Dónár, til að virða fyrir okkur upplýsta borgina.
Gisting: Medosz Hotel Jókai tér 9., 1061 Búdapest.
10. júní 2019 Budapest – Szekesfehervar
Snemma morguns hefst fyrsti hjóladagurinn. Við forum með rútu tilí Martonvásár við Brunszvikkastalann, sem er skammt fyrir utan Búdapest. Hér hefst hjólaferðin, við hjólum bæði á hjólastígum og á sveitavegum og hjólum að einhverju leiti í umferð. Við hjólum um akurlönd, útjaðra lítilla bæja og töluverðan spöl meðfram Velence-vatninu og endum daginn í Szekesfehervar.
Gisting: Novotel Szekesfehervar Ady Endre 19-21 8000 Szekesfhervar.
11. júní 2019 Szekesfehervar– Balatonalmádi
Að loknum morgunverði höldum við í átt að Balatonvatninu. Í dag hjólum við eftir sveitavegum þar til við komum að strandlengju Balatonvatnsins Við hjólum um þorpin Sákeszi, Ösi. Berhida, Papkeszi áður en við komum niður að vatninu. Við endum daginn í Balatonalmádi.
Gisting: Nereus Park Hotel, Lóczy tér 3, 8220 Balatonalmádi.
12. júní 2019 Balatonvilágos - Balatonfüred
Í dag hjólum við eftir hjólreiðastígum,um fallegt landslag, og strandlengju Balatonvatnsins, sem við getum notiðí botn og stoppað ef við viljum til að sulla í vatninu. Við endum daginn í Balatonfüred, sem er þekkt fyiri sögu, menningu og vín.
Gisting: Hotel Silverine Lake Resort Zákonyi Ferenc 4, 8230 Balatonfüred.
13. júní 2019 Dagur 6 Balatonfüred – Tapolca
Fyrrihluta dagsins fylgjum við ströndinni til vesturs eftir hjólastígum. Við getum stoppað ef við viljum og fengið okkur sundsprett í vatninu. Síðari hluta dagsins leggjum við af stað til Tapola, en undir bænum er ca 3.000 metra hellakerfi, sem er vert skoðunar.
Gisting: Hotel Hunguest Pelion Köztársaság tér 10, 8300 Tapolca.
14. júní 2019 Tapolca - Sümeg – Cserszegtomaj
Við byrjum morguninn með að hjóla upp ti Sümeg til að skoða kastala frá 13. öld. Á leiðinni til Cserszegtomaj skoðum við stæstu Buddha “stupu” í Evrópu. Seinni part dagsins stígum við hjólin til Cserszegtomaj,sem er upp af vestur botni Balatonsvatns.
Gisting: Club Dobogómajor, Hévízi Út. 1., 8372 Cserszegtomaj.
15. júní 2019 Cserszegtomaj– Hévízi – Cserszegtomaj
Fyrri hluta dagsins hjólum við til Hévízi þar sem næst stæðsta hvera-stöðuvatn í Evrópu er. Auðvita högum við okkur eins og ferðamenn og prófum herlegheitin (ath. þarf að panta fyrirfram, bæði sund og SPA). Síðdeginu eyðum við í Cserszegtomaj.
Gisting: Club Dobogómajor, Hévízi Út. 1., 8372 Cserszegtomaj.
16. júní 2019 Keszthely - Balatonelle
Hjólaleiðin liggur með syðri bakka vatnsins og til austurs. Leiðin liggur um lítil þorp á vatnsbakkanum og notalega baðstaði.
Gisting: Hotel Francoise, Köztársaság u. 31, 8638 Balatonlelle.
17. júní 2019 Balatonelle – Tihany
Áfram höldum við til austurs. Við tökum ferjuna til Tihany-skagans, þar sem við ætlum að dvelja næstu tvær nætur.
Gisting: Hotel Club Tihany Rév u. 3, 8237 Tihany
18. júní 2019 Tihany
Hjólatúr um Tihanyskagan og afslöppun seinni hluta dags.
Gisting: Hotel Club Tihany Rév u. 3, 8237 Tihany.
19. júní Tihany – Balatonvilágos – Budapest
Eftir morgunverð tökum við ferjuna yfir til Szántód og hjólum til Balatonvilágos og lokum þar með hringnum í kringum vatnið. Rútan kemur og sækir okkur um kl. 14.00. Síðdeginu eyðum við í Búdapest.
Gisting: Medosz Hotel Jókai tér 9., 1061 Búdapest.
20.júní 2019 Budapest
Í dag förum við í skoðunarferð til miðaldabæjarins Eger. Eftir skoðunarferð um bæinn borðum við hádegisverð og smökkum síðan á vínframleiðslu bæjarins.
Gisting: Medosz Hotel Jókai tér 9., 1061 Búdapest.
21. júní 2019 Budapest
Við getum byrjum daginn með gönguferð um miðbæinn og göngum um Andrassy Bulevardinn sem lagður var 1872 með öllum sínum luxus búðum, villum o.fl., göngum um Gyðingahverfið og skoðum stæsta samkuntuhús í Evrópu og jafnvel lítum inn í eina og eina skóbúð. Í lokin setjumst við niður á bakka Dónár og fáum okkur vínglas. Eða högum deginum eins og okkur sýnist.
Gisting: Medosz Hotel Jókai tér 9., 1061 Búdapest.
22. júní 2019 BUD – KEF
Að loknum hádegisverði er kominn tími til að kveðja Ungverjaland og Budapest. Við höldum með flugi til Íslands kl. 16.25 og lendum kl. 23.55 í KEF.